Heilsukrísa
Eða er það krýsa...? Nei, það er í Krýsuvík.
En, það er krísa. Mér finnst svo stutt síðan jólin voru með öllum sínum sósum og gúmmilaði, að ég var ekki alveg farin að átta mig á því fyrr en bara núna í vikunni að það væri kannski kominn tími til að taka aðeins á því. Borða meira frukt og grönt, eins og Svíarnir orða það.
Ég er nefnilega svo mikill fíkill í gotterí og góðan mat, að það tekur mig marga mánuði að komast uppúr þessari óhollustu sem fylgir stórhátíðunum.
Þannig að ég nefndi við Makann í fyrradag, að nú væri lag hjá mér að breyta til og hætta þessu nammiáti hérna öll kvöld. Ég er hætt að geta beygt mig eftir leikföngum á gólfinu, svo fyrirferðarmikil er bumban orðin.
En síðan sló það mig (then it hit me). Það eru páskar eftir nokkra daga.
Hvaða heilvita manneskju dettur í hug að koma sér undan sælgætisfíkn rétt fyrir páska?
Þá er bara um eitt að ræða; þriðjudaginn 10. apríl mun ég officially byrja átakið mitt.
Og óska Möggu minni til hamingju með daginn í leiðinni.
Allir með? Nei, ég hélt ekki.

Efnisorð: Heilsa