Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

01 apríl 2007

Best klæddu börnin

Djöfull er þessi heimur orðinn asnalegur.
Nú er það nýjasta að það er verið að kjósa um best klæddu börnin í Hollywood, ásamt mörgu öðru.

Þetta er svona "Celebrity Parents" pakki, þar sem er t.d. kosið um kynþokkafyllstu foreldrana, vinsælustu börnin og þau best klæddu.

Kynþokkafyllstu foreldrarnir voru að sjálfsögðu Pitt og Jolie (surprise, surprise) og best klædda barnið er semsé Maddox, sem Jolie ættleiddi frá Kambódíu. Þau vinsælustu voru síðan allur sá systkinaskari í kringum Jolie/Pitt.

Hvernig er þetta að verða eiginlega? Þetta fræga fólk er ekki fyrr komið úr hríðum áður en ljósmyndarahelvítin eru mætt og smella myndum í gríð og erg, og síðan heyrast raddir um klæðaburð barnanna á meðan þau eru enn slefandi í kerru. Í Myndbönd Mánaðarins blaðinu nýjasta er einmitt verið að skrifa um dóttur Kate Moss (pant ekki vera hún), að hún sé strax farin að sýna tískuvit, með handtösku og alles.

Síðan var fólk að efast um að yngri sonur Britney Spears væri til, hreinlega vegna þess að það hafði enginn náð honum á filmu.
Aðrir skilja ekkert í Michael Jackson að vera alltaf með þessar skýlur fyrir andlitunum á sínum börnum, en enginn fattar að hann er alveg örugglega að reyna að vernda þau með þessu. Að andlit þeirra verði ekki þekkt út um allan heim.
En stöðvar það ljósmyndarana og ágang þeirra? Aldeilis ekki.

Þetta eru algjörlega sjúk vinnubrögð sem þessir paparazzar og tískufræðingar og Insiderlið eru farin að nota gagnvart börnum þessa fólks. Þess vegna var aumingja Dannielynn, dóttir Önnu Nicole, sú fyrsta sem ég hugsaði til þegar fréttist að Anna Nicole væri dáin.
Sú verður ekki látin í friði það sem er eftir ævinnar....

Ég ætla að taka það fram að ég er að skrifa þessar línur með sjónvarpið í gangi og eldri strákinn bullandi uppí eyrað á mér, eins og ég geri oftast.
Þannig að lesendur mínir láta sér ekkert bregða ef allt kemur út í belg og biðu, það er svo mikil truflun í kringum mig að það þýðir ekki einu sinni fyrir mig að reyna að prófarkalesa síðuna....

En þið skiljið örugglega hvað ég er að meina.

Og já, það er alveg í lagi að kommenta á síðuna mína, er þetta kannski eitthvað bilað?

Efnisorð: