Mikið að einhver opnaði á sér túlann!
Makinn var að sýna mér bloggsíðu Eyvinds Karlssonar, en síðasta færsla hans er einmitt um þessar ógeðslegu Zero auglýsingar sem hafa verið um allt núna.
Eina gagnrýnin sem ég hafði séð við þessa herferð, var þegar Ísfirðingar létu taka niður auglýsingaspjald í matvöruverslun þar sem stóð "Af hverju ekki kynlíf með Zero forleik?", þar sem þeir töldu að þetta gæti verið að senda mjög vafasöm skilaboð til ungra drengja og manna.
Mikið er ég sammála. Það sauð alveg á mér þegar ég sá fyrstu auglýsingarnar í þessari herferð, að Vífilfell, eins stórt fyrirtæki og þeir eru, skuli bara leggja í þetta!
Þarna er komið enn eitt dæmið um kvenfyrirlitninguna sem er verið að ala alla á, en önnur dæmi í þessari herferð eru t.d. "Af hverju ekki sambönd með Zero dramatík?" og "Af hverju ekki brjóstahaldara með Zero smellum?"
Ef þessum andsk. karlrembum sem hanna þessar auglýsingar finnst svona mikið vesen að vera í kringum kvenfólk, að ég tali ekki um að lifa með þeim, er þá ekki bara málið að þeir snúi sér að köllum sjálfir sem eru á sama máli? Mér finnst þetta allavega mjög hommalegt attitude.
Þetta er alveg að fara með feminismann í mér, svo mikið að ég hef hreinlega ekki þorað að tjá mig um þetta hér fyrr en ég sé einhvern annan skrifa um þetta.
Annars held ég að tölvuskjárinn minn hefði bara sprungið.
Færsluna hans Eyvinds má lesa á http://eyvindurkarlsson.com.