Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

09 febrúar 2007

R.I.P.

Ég verð að segja, að ég fór alveg í flækju þegar ég las á vísi.is í gærkvöldi að Anna Nicole Smith væri dáin.
Alveg frá því við hjónin fylgdumst með raunveruleikaþáttunum hennar í Svíþjóð fyrir 3-4 árum, þá einhvern veginn gat ég ekki annað en látið mér þykja vænt um þessa kjánastelpu.
Hún var svona týpa sem ég hataði að elska og elskaði að hata.

Síðan hefur hún auðvitað verið helling í sviðsljósinu undanfarna mánuði og ár;

Fyrst var það deilan út af arfinum sem mun örugglega engan endi taka núna.
Síðan fæddi hún þessa fínu stelpu, allir vissir um að hún væri að komast á réttan kjöl.
Nokkrum dögum síðar deyr sonur hennar. Ef einhver veit hversu hrikalega sárt og erfitt það er að missa einhvern nákominn svona fljótlega eftir barnsburð, þá er það ég.
Og hún, að sjálfsögðu.
Síðan fer þessi faðernisdeila af stað, vangaveltur um hvernig sonur hennar dó og hvort einhver hafi verið valdur að dauða hans....
Og nú þetta.

Ég get svo svarið, að ég er eiginlega enn í hálfgerðu sjokki.

Síðan las ég ágætis lýsingu á henni á mbl.is áðan, svona ástæðu fyrir því hvers vegna fólk "elskaði hana", þó svo að hún væri bara fræg fyrir að vera fræg.
Einhvern veginn kom hún manni fyrir sjónir sem þessi aumkunarverða, vitlausa ljóska, sem átti við öll heimsins vandamál að stríða.
Sýndi að hún var mannleg eins og við hin, ekki þetta endalausa fake-attitude eins og í Paris Hilton og öðrum svipuðum týpum, sem fólk bara þolir ekki.
Síðan var hún svo ýkt öll; rosalegar þyngdarsveiflur, rosalega stór og ýktur barmur, rosalega miklir peningar sem hún beið eftir að fá í arf, rosalega mikið publicity í kringum hana og allt sem hún gerði.... Svo var hún nú voða sæt líka, svona þegar hún var ekki uppdópuð.
Þetta gerði hana kannski að hálfgerðri fígúru, sem maður myndi hlæja að ef hún tilheyrði einhverri teiknimyndaseríu.

Æi, mér fannst hún ágæt greyið. Og það er engin spurning að ég mun fylgjast vel með hvernig málin munu ganga í kringum dauða hennar og allar deilurnar.
Og mikið öfunda ég ekki aumingja litlu dóttur hennar, sú mun ekki eiga auðveldan uppvöxt í öllu þessu fári í kringum fjölskylduna.


Að lokum langar mig svo að benda á nýjustu færsluna hennar Dísu, sem er linkur á hérna hægra megin. Sláandi frásögn, skyndilega er mér skítsama þótt ég sé með slit á maga og soldið sigin eftir 2 meðgöngur.

Efnisorð: