Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

05 febrúar 2007

Enn um dóm Hæstaréttar

Ég fann þetta skeyti sem Hrafn Jökulsson skrifaði á bloggsíðuna, og hefur þegar sent til Hæstaréttar. Hann hefur gefið hverjum sér leyfi, og eiginlega hvetur fólk, til að senda þetta á haestirettur@haestirettur.is og setja sitt nafn undir.

Að sjálfsögðu var ég ekki sein til, skrifaði nafnið mitt og "móðir 2ja barna."

Koma svo, allir að gera copy/paste!

Og hér kemur skeytið.....

Til Gunnlaugs Claessens, Hrafns Bragasonar, Markúsar Sigurbjörnssonar, Árna Kolbeinssonar og Garðars Gíslasonar.
Sem borgari íslenska lýðveldisins lýsi ég hyldjúpum vonbrigðum með dóm ykkar í máli ákæruvaldsins gegn Ólafi Barða Kristjánssyni. Hann var í héraðsdómi dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn stúlkubörnum. Yngsta fórnarlambið var þriggja ára telpa. Ég endurtek: Þriggja ára. Nú hafið þið ákveðið að milda dóminn yfir Ólafi Barða Kristjánssyni, úr tveimur árum í eitt og hálft. Þið hefðuð getað dæmt hann í 4 ára fangelsi, samkvæmt 2. málsgrein 202. greinar almennra hegningarlaga. Fyrsta málsgrein gerir ráð fyrir allt að 12 ára fangelsi, einsog þið vitið kannski. En þið milduðuð dóm héraðsdóm, niður í eitt og hálft ár. Það þýðir að hann þarf í mesta lagi að sitja í ár í fangelsi. Mildi hæstaréttar gagnvart kynferðisafbrotamönnum hefur margoft vakið furðu, reiði og hneykslun meðal þjóðarinnar. Afstaða hæstaréttar í þessum hörmulegu málum er á skjön við vilja löggjafans og álit þjóðarinnar. Með kveðju,

Efnisorð: