Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

09 janúar 2007

Einmitt það já.

Mig grunar að helmingur þeirra bloggara sem ég þekki hafi gert það áramótaheit að blogga ekki nema á 2ja vikna fresti.
Þar með talið ég.

Veit ekki hvað það er sem fylgdi hátíðunum, ég hef bara varla nennt að kíkja á þessa síðu síðan á Gamlársdag! Að vísu búin að liggja mikið yfir bókum og hanga alveg rosalega mikið á DC, en samt...

Kannski er bara svona mók-lægð yfir mannskapnum eftir hátíðarnar.
Sitja allir heima hjá sér yfir einhverjum fallegum pappírssneplum sem voru límdir á víð og dreif um íbúðina fyrir áramót til að minna á nýársheitið.
Og bölva.

"Andskotinn, þarf ég nú að fá móral í hvert einasta skipti sem ég hleypi ekki gamalli konu framfyrir mig í kassaröðinni í Bónus?"

"Nei djöfull, þetta reykstopp er algjör della. Tek ekki þátt í svona rugli, ég reyki bara ef mér sýnist!"

"Jájá, auðvitað þurftu þeir að hækka verðið á líkamsræktarkortunum, bara af því ÉG ætlaði að ná mér í svoleiðis."


Hver þekkir sig í einhverjum af þessum frösum?

En síðan efir u.þ.b. viku eða svo, þá er mesta æðið runnið af flestum.
Allavega þekki ég ekki marga sem hafa haldið við sitt áramótaheit.
Erum að vísu á góðri leið með það, við hjónin, en sjáum hvernig vikan verður.. :O