Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

06 apríl 2007

Páskafrí?

Ég kann greinilega ekki að vera í fríi.
Miðað við það sem ég mun hafa afrekað þegar þessi dagur er liðinn er ekkert sem minnir á frí, þannig séð.
Ég er jú heimavinnandi, þannig að ekki er ég að fagna því að geta sofið út á morgnana og þurfa ekki að mæta í vinnu.

Við fórum að vísu í fínan bíltúr í dag, fjölskyldan, en síðan taka líka öll skylduverkin við um leið og heim er komið. Saumaði eitt stykki sængurver fyrir minnsta drenginn, bleyjuskipti, kvöldmatur, frágangur eftir kvöldmat, háttatími á börnin, og nú eru tertubotnar í ofninum sem bíða þess að verða klárir fyrir afmælistertu morgundagsins.

Já, sá minnsti verður nefnilega 1 árs á morgun. Heilt ár liðið síðan ég afrekaði svölustu fæðingu ever, þó ég segi sjálf frá. ;)
Ég er líka búin að spá því að hann muni vakna á slaginu 7:53, en það er einmitt tíminn sem hann mætti á sviðið með öll sín 5,3 kg og 56 cm.
Hlunkurinn minn, sem er að verða þvílíkur karakter og trúður að stundum veit ég ekki hvernig ég á að vera í kringum hann.

En svo við snúum okkur nú aftur að þessari hugmynd að fríi, þá er tiltekt eiginlega frekar nauðsynleg í kvöld eða strax í fyrramálið. Alveg ómögulegt að hafa allt í drasli á afmælisdegi barnsins, þó svo að maður sé ekki að fara að halda neina veislu.
Það nefnilega vill svo til að hér um bil allir í fjölskyldunni eru í burtu eða að vinna yfir páskana, þannig að við ákváðum að vera ekkert að halda neitt boð. Liðið getur þá bara komið og fengið sér tertuafganga eftir sínar fjarverur ef það er einhver stemmning fyrir því.

Efnisorð:

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home