Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

03 apríl 2007

Húsráð

Verandi heimavinnandi húsmóðir er ég algjör blóðsuga þegar kemur að svona húsráðum og tips við hreingerningar og annað.
Ég fann þessar "leiðbeiningar" til að gera fínt á kortéri, t.d. þegar maður á von á gestum.
Þetta er lauslega þýtt, vonum að þetta skiljist nokkurn veginn. :)

1. Opnið alla glugga og loftið út. Það gerir loftið hreinna og laust við svona "innilokað" loft.

2. Takið saman allt smádót í því herbergi sem þið ætlið að vera. Höfundar bókarinnar sem þessi ráð koma úr segist vera vön að henda öllu í stóra Ikea poka og geyma í lokuðu herbergi.

3. Takið til í forstofunni. Hún er mjög mikilvæg, því það er fyrsta herbergið sem gestirnir sjá þegar þeir koma inn í íbúðina. Raðið skóm fallega hlið við hlið og fjarlægið allar óþarfa yfirhafnir, töskur og poka. Fínt að nota stóru pokana í það líka.

4. Skúrið létt yfir gólfin. Að nota vatn og smá sápu er mun frísklegra en að ryksuga. Hellið bara smá vatni og sápu í fötu og takið nokkrar snöggar rispur yfir gólfin í þeim herbergjum sem þið ætlið að vera.

5. Snögg baðherbergisþrif. Þrífið klósettið, skiptið um handklæði og notið gamla handklæðið til að þurrka yfir vaska og spegla. Skiptið jafnvel um sápu og klósettpappír.

6. Þrífið eldavél og matarborð. Gangið frá leirtaui, skiptið um viskustykki og notið það gamla til að þurrka yfir borðin og eldavélina. Ef þið skellið smá sápu í tuskuna kemur svo frískleg lykt, þannig að allir sem koma í heimsókn halda að þrifin séu alltaf óaðfinnanleg.

Að síðustu er ágætis ráð að slökkva á loftljósum og hafa meira af lampalýsingum og kertaljósum. Þannig fara þau óhreinindi sem annars myndu sjást auðveldlega fram hjá fólki.
Það virkar samt auðvitað helst þegar gestir koma að kvöldi til.

Ég hef nú ekki tímasett þetta sjálf, en ég er alveg klár á að þetta taki ekki mikið meira en kortér, ef allir eru hressir. :)

Efnisorð:

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home