Svona er Ísland í dag.
Sá þarna bláendann á Spaugstofunni sl. laugardagskvöld.
Mér eiginlega hálfbrá þegar ég sá breytinguna sem þeir höfðu gert á þjóðsöngnum, því ég hélt að þetta væri alveg stranglega bannað! Ekki það að uppsetningin þeirra hafi ekki verið skemmtileg, en það er ekki nóg. Það er líka örugglega voða gaman að keyra kraftmikinn bíl á 200 km/h á Reykjanesbrautinni, en alveg jafnbannað engu að síður.
Svo var það viðtal Evu Maríu við Baugalín, höfund bókarinnar Launhelgi Lyganna. Ég var einmitt að enda við að lesa þessa bók fyrir um hálfum mánuði síðan, mæli með henni fyrir hvern sem er.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home