Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

07 mars 2007

Kominn tími á mig?

Ég fékk einhverja kvörtun um daginn yfir að ég væri búin að vera löt við bloggið mitt...
Reyni að bæta úr því næstu daga. Held að ég sé að komast í svona stuðsyrpu. :)

Helst að frétta héðan er að ég er loksins farin að fullorðnast. Orðin hálfþrítug, hvorki meira né minna. Held meira að segja að ég hafi fundið nýja broshrukku á afmælisdaginn. ;)

Að sjálfsögðu fékk ég voða fínar afmælisgjafir frá mínum nánustu; veglegt gjafabréf í Vero Moda frá múttu og systkinunum, eitt stykki saumavél frá sonum mínum (!) og einn þann allra fallegasta blómvönd sem ég hef séð og konfekt frá Makanum.

Í gær ákvað ég síðan að skreppa í búðir með sys, til að finna mér eitthvað fínt fyrir gjafabréfið sem ég fékk. Verslaði fyrir meirihlutann af summunni, gekk út með vörurnar í barnakerru (sem ekkert barn var í akkurat þá stundina), og um leið byrjaði að pípa á mig. OK, ég sneri mér að afgreiðsludömunum með ofsa spurnarsvip, datt strax í hug að þær myndu nú vilja renna aðeins í gegnum kerruna og pokana... En nei nei. "Labbaðu bara áfram, þetta er allt í lagi!"

Ég hélt að þetta væri kannski einhver vani, að tækið pípti á alla sem gengu út úr búðinni með nýjar vörur. Síðan þegar ég kem heim fer að ég kíkja á fötin og viti menn...
Það hafði gleymst að taka þjófavörnina af tveimur flíkum.
Spáið í hvað ég hefði getað labbað út með, í barnakerrunni jafnvel!
Mér finnst þetta alveg frábært.

Vona að þetta sé ekki stíllinn í fleiri búðum, það verður fljótt til þess að föt hækka helling í verði, og nóg er nú samt.

Efnisorð:

3 Comments:

  • At 7:05 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    díses! þetta er náttúrulega bara léleg þjónusta. það pípti oft á fólk í topshop. yfirleitt var það út af bókakaupum eða einhverju svoleiðis en það kom fyrir að það gleymdist að taka þjófavarnirnar úr og þá var líka fínt að komast að því á staðnum en ekki að fá kúnnann óánægðan daginn eftir með þjófamerkta vöru:/ (sem gerðist aldrei þar sem við tékkuðum alltaf ef það pípti) fussumsvei!!

    kannski ég kíki ekkert á þig fyrr en um helgina. ég ætla að sjá til bara:)

     
  • At 8:23 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Innilega til hamingju með afmælið sæta mín!

     
  • At 11:43 f.h., Blogger Unknown said…

    til hamingju með daginn um daginn:Þ
    ég er bara í því að óska fólki of seint til hamingju með daginn, ég held að ég verði að fara að fylgjast betur með dagatalinu mínu :/

     

Skrifa ummæli

<< Home