Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

28 mars 2007

Ja hérna hér.

Ég var að lesa ansi áhugaverða grein eftir Katrínu Önnu í nýjasta hefti Uppeldis, um þennan tendens að hafa leikföng "kynbundin", það er alltaf bílar og boltar fyrir stráka, og síðan dúkkur og eldunargræjur fyrir stelpur.

Augu mín opnuðust fyrir ansi mörgu sem ég hef ekki pælt í áður.
Til dæmis er alveg fáránlega óviðeigandi að segja við stráka að "þeir sparki í bolta eins og stelpur", þar með sé eiginlega búið að ákveða að þeir eigi að vera flinkastir og bestir í fótbolta.
Ekki stelpurnar.

Hún kom líka inná þetta með hvað stelpur væru oft gerðar að kynverum, því til stuðnings nefndi hún m.a. að í Leikbæjarbæklingnum fyrir öskudag voru auglýstir hjúkkubúningar, sem eiga meira skylt við múnderingu úr hjálpartækjaverslun en þann klæðnað sem hjúkkur klæðast í dag.

Síðan kom ansi sláandi staðreynd sem ég hafði ekki hugmynd um, og mér varð alveg óglatt við að lesa þennan hrylling...

Fyrir ári síðan var Solla Stirða, sem er 8 ára fígúra úr Latabæ, valin 8. kynþokkafyllsta kona landsins.

Ég held að ég þurfi ekki að hafa fleiri orð um þetta.

Hvað varðar þessi kynbundnu leikföng, þá er ég persónulega ekki á móti því að strákar leiki sér helst með strákadót og stelpur með stelpudót, en að sjálfsögðu þarf maður ekki að hindra þau í að prófa eitthvað annað. Til dæmis var strákurinn minn einhvern tímann að stelpur ættu ekki að leika sér með Spiderman eða Batman, en þá sagði ég honum af ef þeim finndist það spennandi og langaði að prófa, þá væri það nú allt í lagi.
Sjálf átti ég strákavin þegar ég var 6-9 ára, sem átti örugglega landsins stærsta safn af Ponyhestum. Hann er nú kominn útúr skápnum í dag, en það er önnur saga.... :D

Það eru tvö kyn, og ég held að það sé frekar mikilvægt að seinna meir séu börnin, sem einhvern tímann verða fullorðin, búin að fá góðan grunn til að láta þau átta sig á því hvers kyns þau eru.
Kynhlutverkin er hægt að deila endalaust um, en samt sem áður er það bara þannig að það ERU vissir hlutir sem hvort kyn hefur fram yfir hitt.

Þótt ég telji mig vera alveg argasta feminista, og vilji sjá jafnrétti á vinnustöðum og annars staðar umfram allt, þá held ég að við verðum að halda í okkar eiginleika og hæfni sem teljast vera svona... hvað eigum við að segja... lýsandi fyrir hvort kyn fyrir sig.
T.d. held ég að konur séu yfir höfuð flinkari við saumaskap, því þær sýna meiri nákvæmni sem þarf við fínhreyfingar. Og á móti kemur, að karlarnir eru nú öllu lagnari við trésmíðar myndi ég segja.
Auðvitað eru til fullt af dæmum um konur sem eru ofsa færar í að laga bíla og karla sem sjá alveg um böðun og bleyjuskipti á börnum á heimilinu, en leyfum okkur samt að hafa þetta svolítið ríkjandi á milli kynja.
Og það er líka óþarfi að hlæja að einhverjum sem er flinkur í því sem ætti að teljast vera starf fyrir hitt kynið, um að gera að vera bara opin fyrir öllu. Ekki satt? ;)

Efnisorð:

1 Comments:

  • At 1:57 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Elskan.....held að þú sért að renna á rassinn með feministabullið;).....konur eru konur....og menn eru menn......er þaki ?

     

Skrifa ummæli

<< Home