Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

25 mars 2007

Já.

Ég hef verið svo mikið að stúdera nýja bloggið mitt, að ég var alveg farin að gleyma þessari síðu.
Ekki það að mikið hafi verið um að vera hjá mér, þannig séð.

Er að vísu á leiðinni í afmæli til systursonar míns á eftir, og er búin að þræða netið til að finna einhverja hentuga afmælisgjöf fyrir hann. Ég er miklu flinkari í að finna eitthvað handa yngri krökkum...

Og talandi um afmæli, að þá eru ekki nema 2 vikur í að sá minnsti á heimilinu verði 1 árs..!
Mér finnst ekki vera meira en 5-6 mánuðir síðan ég kom með hann heim, ofsfa bústinn og sætan, af spítalanum. Það er ekki fyrr en ég fer að spá í hvað honum er að fara fram á hverjum degi sem ég átta mig hvað tíminn er fljótur að líða. Ég verð farin að ferma áður en við vitum af.

Efnisorð:

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home