Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

14 mars 2007

Ekkert heilagt lengur?

Nú finnst mér vera komið svolítið skrýtið tvist á lífsstílinn hjá fólki.

Innlit/Útlit hafa í mörg ár sýnt frá heimilum fólks, þar sem maður er leiddur alveg úr forstofunni og inní svefnherbergi, jafnvel hjá nýgiftu fólki. Og þetta eru íbúarnir tilbúnir að sýna okkur bara eins og þau hafi verið að fá sér nýjan tannbursta.
Sjálfri finnst mér svefnherbergi vera staður sem enginn á erindi í nema maður sjálfur, nema kannski svona allra nánustu ættingjar. Ekki myndavélar með ljósum og öllu sem taka þetta upp til að sýna alþjóð.

Síðan er það auðvitað fatatískan. Paris Hilton og fleiri skemmtilegar stelpur hafa komið því inní hausinn á misvitlausum litlum stelpum að það sé alveg obboðslega sniðugt að sýna sem mest af skrokknum á sér á almannafæri, þetta sé ekki bara fyrir wannabe klámstjörnunar í tónlistarmyndböndunum. Við vitum nú öll hverjar afleiðingarnar af því eru; BÖRN niður í 12 ára aldur ganga um í g-stringbuxum, sýna hverjum þeim sem "vilja" sjá, í bolum sem eru flegnir niðrá nafla og troða allskonar drasli í brjóstahaldara sem ættu ekki að vera til í svona litlum stærðum.

Get my drift?

Og síðan kemur það allra nýjasta sem mér finnst alveg stórkostlegt, og það er þessi náttbuxnatíska.
Hvað á maður eiginlega að fá að skilja eftir heima hjá sér, eða bara í sínu einkalífi?
Íbúðir fólks eru á display um allt land, konur og stelpur eru að bera sig um allar trissur, og nú eru meira að segja náttfötin orðin almanneign?!

Ég veit reyndar að þetta er bara tíska, og ekki endilega sá náttklæðnaður sem krakkarnir hafa verið í nóttina áður, en samt....

Auðvitað ferst mér að vera að skrifa um einkalíf, verandi með þessa bloggsíðu þar sem ég kem stundum með einhverjar mini-færslur um fjölskylduhagina eða einhver prakkarastrik sem drengirinir taka uppá.

En fyrr mun ég dauð liggja en að ég fari að birta myndir af mér að elda, skipta á börnunum, nú, eða bara myndir af nærbuxnasafninu mínu!

Er ég svona ofboðslega gamaldags þó ég sé rétt 25 ára, eða eru fleiri sem hugsa svona?
Er í alvöru ekkert heilagt lengur?

Efnisorð:

3 Comments:

  • At 3:41 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Mér finnst oft bara samfélagið heild vera svolítið brenglað. Ef maður hugsar bara um hvernig allt hefur breyst. Hvað er að gerast í samfélaginu þegar fólk er byrjað að eyða fóstrum sem er holgóma eða sem varð óvart til mánuði of snemma. Enginn má vera öðruvísi - allir eiga að vera fullkomnir. Það er töff að vera mamma og vera með sléttan maga og flott brjóst. Ekki lengur kósý að slitin sjáist og að brjóstin hangi pínu eftir brjóstagjöf.

    Þetta er að vísu svolítið útfyrir það sem þú ert að segja - en fékk mig bara til að hugsa. Allt snýst um útlit og peninga. Ekki hver þú ert og hvað þú getur gefið af þér.

    Nú er ég ekki að segja að allir hugsi svona - en það eru vissulega margir.

    Held ég bloggi bara líka um þetta haha. Áður en ég skrifa heilt blogg um þetta;)

     
  • At 11:48 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    hey! hefurðu horft á fyrstu sporin!!! gellunum er alveg nákvæmlega sama þó það sé verið að sýna brjóstin á þeim í sjónvarpinu! nei bara svona.. af því þú varst að tala um einkalíf á glámbekk.

     
  • At 11:49 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    nei úbbs!! ég sá ekki fyrra kommentið fyrr en ég var búin að kommenta:D haha:D þetta er semsagt ég, heiðdís:)

     

Skrifa ummæli

<< Home