Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

03 febrúar 2007

Hæstiréttur alltaf jafn réttvís

Nú er allt vitlaust út af forsíðu Moggans í gær, þar sem var birt mynd af dómurunum 5 sem milduðu dóm yfir enn einum helv. barnaperranum.
Hann hafði víst fengið 2 ára dóm í Héraðsdómi, en Hæstarétti fannst 18 mánuðir bara alveg nógu mikil þjáning fyrir aumingja manninn.

Samkvæmt kommentum á Simmabloggi eru einhverjir sem vilja meina að þessir dómarar hafi verið hengdir með því að birta myndir af þeim á forsíðunni, og að einhver starfsmaður Moggans sé greinilega í hefndarhug með þessu uppátæki.
Þvílík vitleysa.

Ég held að það sé nokkuð ljóst, að tilgangurinn með þessari forsíðufrétt sé sá að nú hafa kynferðisafbrotamenn verið ansi mikið í sviðsljósinu undanfarnar vikur, ekki síst eftir þennan fræga Kompásþátt. Því er ekki nema rétt að fólk sjái hvað réttarkerfið er að fara illa að fórnarlömbum þessara manna, m.a. með magnafslættinum svokallaða á dómum.
Það varð allt vitlaust þegar kom í ljós að Ágúst, einn af köllunum sem fóru heim til tálbeitunnar í Kompás þættinum, bjó inná Vernd og var að afplána dóm fyrir brot gegn börnum.

Sýnir það ekki bara hvað þessi hópur glæpamanna/sjúklinga er að sleppa billega eftir að sjálfur "dómurinn" hefur verið felldur?

Er Mogginn ekki bara að benda fólki á hvað við erum illa varin fyrir þessum ljótu köllum?
Hvað ætli 18 mánaða fangelsisvist hafi eiginlega að segja fyrir helsjúka menn, sem ættu eiginlega bara heima inná Sogni í allavega 10 ár??

Ég sá þessa forsíðu sjálf og ég get ekki séð að Mogginn hafi á einhvern hátt verið hlutdrægur í þessu máli.
Annað hefði þetta verið DV eða álíka fínt alþýðublað, þá held ég að orðin hefðu fengið að fjúka um ágæti og vinnubrögð þessara dómara.

Kominn tími á að Sognið taki þessa bannsetta níðinga og heilaþvoi þá almennilega.
Fæstir þeirra eiga nokkuð heima í fangelsi, þar sem yfirleitt eru þeir alveg fáránlega sjúkir á geði.

Og jú, Mogginn á að halda áfram að vekja athygli á svona dómum.

Mín skoðun.

Efnisorð:

1 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home