Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

01 febrúar 2007

Fráhvörf dauðans!

Í kvöld sat ég lengi sveitt í tölvustólnum.

Fyrst þóttist ég vera voða róleg yfir því, að ljósleiðari hafði farið í sundur einhvers staðar í hverfinu, og því var netlaust til kl. 21:30.
Mætti kannski taka fram, að ég er yfirleitt komin í tölvuna um kl. 21 á kvöldin, þannig að þarna fór heill hálftími í einhver þykjustu-rólegheit. Ætlaði aldeilis að nota þennan tíma og gera eitthvað uppbyggilegt á meðan eins og að vaska upp.

Það varð nú ekki úr því, enda fór þessi hálftími í að spila Spider á tölvunni og gjörsamlega einblína með öðru auganu á módemið og bíða eftir að rétta ljósið myndi kvikna þar.

Síðan kom ljósið, og ég varð voða, voða glöð.

Á meðan ég var að sinna símtali tókst mér síðan að rekast í einhvern ljótan takka á tölvunni, þannig að tölvan fór á Hibernate.
Ekkert mál, kveikti bara á henni aftur.

En þá lá ég í því. Músin var dottin út.

Í heilan einn og hálfan klukkutíma, ef ekki meira, var ég fiktandi í öllu sem hægt er að fikta í, hringjandi í makann, takandi kapla úr vélinni og setja þá aftur í, Control Panel, öll device skoðuð og hvað þetta heitir allt, þetta helv. rugl.

Á þessum eina og hálfa tíma hugsaði ég bara: "Ég kemst ekki á netið, ég er að missa af einhverju stórkostlegu, kannski er einhver online sem vantar að tala við mig...Ég kemst ekki á netið, ég kemst ekki á netið, ég kemst ekki á netið....."

Og á þeim tímapunkti sem ég hélt algjörlega að ég væri að missa vitið út af þessu hryllilega og martraðarkennda netleysi, kikkaði músin inn.

Þvílík gleði. Hjartað fór í nokkra kollhnísa af gleði, og magahnúturinn minnkaði alveg stórkostlega.

Og ég fór online. Það voru 3 á msn, allir Busy eða Away.
Ég átti 2 e-mail, annað var fréttabréf frá samtökum til stuðnings börnum í Úganda, hitt var
"Á hvað ert þú að hlusta?!" frá tonlist.is.

Ekkert í fréttum sem ég sá ekki í kvöld, að vísu 2 ný comment hér á blogginu, but that´s it.

Svona getur maður blekkt sjálfan sig í fíkninni. :)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home