Enn um dóm Hæstaréttar
Ég fann þetta skeyti sem Hrafn Jökulsson skrifaði á bloggsíðuna, og hefur þegar sent til Hæstaréttar. Hann hefur gefið hverjum sér leyfi, og eiginlega hvetur fólk, til að senda þetta á haestirettur@haestirettur.is og setja sitt nafn undir.
Að sjálfsögðu var ég ekki sein til, skrifaði nafnið mitt og "móðir 2ja barna."
Koma svo, allir að gera copy/paste!
Og hér kemur skeytið.....
Til Gunnlaugs Claessens, Hrafns Bragasonar, Markúsar Sigurbjörnssonar, Árna Kolbeinssonar og Garðars Gíslasonar.
Sem borgari íslenska lýðveldisins lýsi ég hyldjúpum vonbrigðum með dóm ykkar í máli ákæruvaldsins gegn Ólafi Barða Kristjánssyni. Hann var í héraðsdómi dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn stúlkubörnum. Yngsta fórnarlambið var þriggja ára telpa. Ég endurtek: Þriggja ára. Nú hafið þið ákveðið að milda dóminn yfir Ólafi Barða Kristjánssyni, úr tveimur árum í eitt og hálft. Þið hefðuð getað dæmt hann í 4 ára fangelsi, samkvæmt 2. málsgrein 202. greinar almennra hegningarlaga. Fyrsta málsgrein gerir ráð fyrir allt að 12 ára fangelsi, einsog þið vitið kannski. En þið milduðuð dóm héraðsdóm, niður í eitt og hálft ár. Það þýðir að hann þarf í mesta lagi að sitja í ár í fangelsi. Mildi hæstaréttar gagnvart kynferðisafbrotamönnum hefur margoft vakið furðu, reiði og hneykslun meðal þjóðarinnar. Afstaða hæstaréttar í þessum hörmulegu málum er á skjön við vilja löggjafans og álit þjóðarinnar. Með kveðju,

Efnisorð: Drulludómar

1 Comments:
At 10:12 f.h.,
Nafnlaus said…
Ja hérna!! Ég verð alltaf svo reið þegar ég sé dóma sem barnaníðingar fá!!! Þetta er bara bull!! Svo fá þeir sem eru með dóp í bílnum hjá sér einu sinni svipaðan dóm... Faðir vinkonu minnar fékk dóm fyrir að misnota barnið sitt frá 5 ára þangað til hún var um 16 ára... hann fékk næstlengsta dóm sem hafði verið kveðinn þá... hann sat inni í 1 og hálft vegna góðrar hegðunar!!! Arg
Skrifa ummæli
<< Home