Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

31 janúar 2007

Taka 2

Uss, nú halda örugglega allir að ég sé að kenna unglingum og leiða þeirra um þessa ágengni í ljótu köllunum á netinu...

En svo er nú aldeilis ekki. Ég bara skrifaði síðustu færslu í svo miklum flýti, að ég einhvern veginn náði ekki að koma með alla vinkla á málinu.
Fannst þetta bara vera svona hugmynd um hver er ástæðan fyrir því að krakkar séu að gera kjánalega hluti á netinu yfirleitt, þ.e. af því þeim leiðist.

Auðvitað eru þessir kallar alveg helsjúkir, að láta sér detta í hug að misnota sér svona sakleysi og reynsluleysi krakka frá 12-13 ára aldri. Mér finnst þetta algjör viðurstyggð, persónulega.

En nú að öðru.
Ísland-41, Danmörk-42.

Nei, ég var ekki glöð í kvöld. Ég að vísu sá nú ekki nema brot og brot af sjálfum leiknum þar sem það var kominn háttatími hjá yngsta fjölskyldumeðlimnum, en ég sá hinsvegar alla framlenginguna, og hún var örugglega nóg til að gera hvern mann geðveikan!

Svo einhvern veginn kikkar þetta ekki strax inn, hvað þetta var ógeðslega svekkjandi.
Jeg er ikke ligeglad. Djöfullinn er danskur.

En pýramídarnir bíða, ég er að sökkva mér niður í heimildaþætti um Egyptaland og Afríku og allt þar á milli. Sem er kannski ekki voða margt, hahaha!

Góða nótt, og góðar stundir.

1 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home