Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

23 janúar 2007

Sunny side up, please. :)

Ég var nú eiginlega búin að ákveða að skrifa ekkert um það sem er á döfinni hjá mér á næstu mánuðum. Hef nú samt ákveðið að slá til, í von um að fleiri sýni þessu kannski áhuga.
Alltaf gott að dreifa boðskap. :)

Yours truly er semsé á leiðinni í eggjagjöf.
Fyrsta viðtal við sérfræðing er strax í byrjun febrúar, þar sem verður víst farið yfir heilsufarssöguna og annað.
Síðan taka við einhverjar rannsóknir, viðtal hjá félagsráðgjafa og annar tilheyrandi undirbúningur.
Í kringum 10. mars mun ég síðan byrja í sjálfri meðferðinni, sem er í sjálfu sér ekkert voðalegt mál fyrir þær sem eru staðfastar í að gera þetta.
Eftir um 2-3 vikna meðferð verður síðan náð í nokkur egg frá mér, sem vonandi munu hjálpa einhverjum dömum þarna úti til að geta börn sjálfar í stað þess að fara í einhvern ættleiðingarpakka.

Þó ég sé að vísu algjörlega hlynnt ættleiðingum (og skilji ekkert í þegar talað er um "skort á börnum"), þá finnst mér þetta vera frábær aðferð fyrir þær sem vilja kynnast því að vera ófrískar að eigin barni. Jújú, auðvitað á ég 50% af genunum í því sem kemur, en fyrir þau pör eða hjón sem hafa kannski reynt í mörg ár að eignast börn efast ég um að það sé mikið tiltökumál.

Ég er alveg ofboðslega spennt fyrir því að geta gefið svona af mér. Ég er nefnilega ein af þeim sem er alveg fáránlega frjó, og finnst mér að á þennan hátt sé ég kannski svolítið að deila þessari frjósemi með öðrum.

Það eru nú einhver "boundaries" sem ég hef verið að spá í fyrir tilvonandi eggjaþega, en ég held að það sé alveg eðlilegt. Eins ætla ég ekki að gera þetta nafnlaust, þó svo að það sé möguleiki, því maður veit aldrei nema það komi upp einhver vandamál í framtíðinni sem gætu tengst genunum á einhvern hátt.

Að sjálfsögðu vil ég svo fá að vita hvort eitthvað hafi orðið úr eggjunum, en það er eiginlega það eina sem ég spái í, þannig séð. Mér finnst gjöfin sjálf vera það mikilvægasta, og ég er eiginlega alveg hissa á að fleiri skulu ekki gera þetta, þ.e. að gefa egg.

Þetta var allavega svona kynning á þessum pakka sem ég er að fara útí, hver veit nema ég leyfi dyggum lesendum mínum að fylgjast með öllu ferlinu á þessari síðu minni. :)

En endilega spáið aðeins í þessu. Ég fékk voða fínan bækling sendan heim um daginn, sem svaraði mörgum spurningum fyrir mig, og gerði mig þar af leiðandi enn staðráðnari í að leggja þetta smáræði á mig.

Með von um góða eggjaheilsu!

Efnisorð:

3 Comments:

  • At 12:20 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Mér líst vel á þetta hjá þér :)

     
  • At 10:22 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    mér finnst þetta alveg frábært hjá þér og gangi þér vel með þetta:) og vonandi vegnar eggjunum þínum vel úti í þessum stóra heimi:)

     
  • At 8:46 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Mér finnst þetta bara snilld og fallega hugsað hjá þér. Sýnir hvernig manneskja þú ert.

     

Skrifa ummæli

<< Home