Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

29 janúar 2007

Barnaperrar

Jæja, ég er örugglega síðasti Íslendingurinn til að horfa á þennan Kompásþátt um ljótu kallana á netinu.

Þarna var líka talað við foreldra unglinga og svo krakka í 9. bekk, og ég er ekki frá því að ein af stelpunum hafi komið með hluta af orsök vandamálsins..
Unglingar í dag hafa ekkert að gera á kvöldin.
Þess vegna fara þau að leika sér við að setja einhverjar auglýsingar á einkamal.is og fíflast í einhverjum perrum.
Það er örugglega mikið af þessum krökkum að gera í þetta í algjöru sakleysi, en, come on.
Ekki er svo langt síðan ég var unglingur að ég muni ekki hvað það er gaman að fíflast í liði sem er eitthvað öðruvísi en aðrir.

Nú er alltaf verið að tala um að börn og unglingar nú til dags hreyfi sig allt of lítið, hangi mikið í tölvum og yfir sjónvarpi og hafi engin áhugamál eða stundi tómstundir.
Reykjavíkurborg var sniðug og fór að gefa út þessi frístundakort til barnafjölskyldna, þar sem eru í boði einhver þúsund á ári fyrir hvert barn til að stunda íþróttir eða sækja einhvers konar námskeið.
En þá er bara spurningin, væri ekki frekar málið að ríkið eða öll sveitarfélögin sæi bara um þetta, að koma því í kring að börnin í landinu hafi örugglega nóg fyrir stafni?
Ef þetta yrði gert í öllum landshlutum, þá væri það örugglega orðið sjálfsagður hlutur fyrir krakkana að gera eitthvað skemmtilegt á kvöldin eða eftir skóla.
Eitthvað sem tekur hugann aðeins frá tölvunni.

Þó þetta myndi nú örugglega ekki duga til að halda þeim algjörlega frá öllu skjágrúski, að þá væri þetta kannski aðferð til að koma í veg fyrir að þau fari að gera eitthvað kjánalegt eins og að stofna bloggsíður með misvafasömum myndum af sér í frítímanum.
Bara svona til að drepa tímann.

Of mikill frítími og leiði er aldrei góður, við vitum það öll.

1 Comments:

  • At 8:57 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    verst að þessir barnaperrar sækja í svona tómstundastörf og svoleiðis því þá eru þeir stöðugt að umgangast börn:/

     

Skrifa ummæli

<< Home