Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

30 desember 2006

Enn bætist við listann

Jamm, eftir einhvern tíma mun ég geta sagt, að ég man hvar ég var þegar ég las að Saddam væri dauður.

Ég horfði á þetta stutta myndskeið sem var á öllum síðum í dag, og einhverra hluta vegna get ég ekki sagt að ég mér hafi verið létt eða á einhvern hátt liðið betur eftir að hafa horft á það.
Verandi ein af þeim sem fagnaði þegar hann fékk þennan dauðadóm, þá varð mér bara hálf ómótt af að sjá hann leiddan að gálganum. Svei mér þá, ef ég vorkenndi kallinum ekki bara pínulítið, svona umkomulausum og algjörlega vitandi upp á sig skömmina.
En þetta eru lögin þarna úti, og lítið við þeim að segja.

Og ég ætla samt að vera svo djörf að segja að ég er ekki á móti dauðarefsingum, ef rétt er farið með þær.

Hinsvegar er stóra spurningin sú hvaða áhrif þetta á eftir að hafa á ástandið þarna í Írak. Mér hefur lengi fundist að það gæti ekki versnað, en nú veit ég ekki.
Er ansi hrædd um að þetta muni taka sinn toll, sérstaklega þar sem ég las einhvers staðar að Bússarinn hefði fagnað aftökunni opinberlega....
Gáfulegt hjá honum. Allt gert til að gera pabba gamla glaðan.

En er þetta ekki soldið bjánaleg "fyrsta-blogg-eftir-jól" færsla?

Aðfangadagur var alveg stórkostlegur, borðuðum ágætismat alveg á slaginu kl. 18, pakkar voru rifnir upp um klukkustund síðar og síðan kíkt í smá heimsókn til tengdamömmu. Seinnipartur kvölds fór síðan bara í notalegheit með makanum, auðvitað ekkert sem slær það út. :)

Jóladagur bara rólegheit, matur hjá mömmu á öðrum, leikskóli í 2 daga og síðan bara komið helgarfrí aftur! Enda eru allir á heimilinu búnir að snúa sólarhringnum í einhverjar fáránlegar gráður, við mæðginin erum ekkert að rífa okkur á fætur fyrr en ca. 9 á morgnana! Vá, næstum því hægt að segja að ég sé að sofa út...
En ekki alveg.

Annað kvöld (Gamlárs) verðum við bara heima í heiðar.
Það er full mikið vesen að vera á of miklum þvælingi með strákana svona seint að kvöldi. Það myndi allavega ekki hjálpa sólarhringnum að lagast.
Það voru keyptar nokkrar rakettur fyrir Magga minn í dag, verður spennandi að sjá svipinn á honum þegar verður tendrað á þessu annað kvöld. :)

Læt heyra í mér fljótlega ef við fuðrum ekki upp á morgun. :)

GLEÐILEGT ÁR!!! *sprengjuroglæti*