Jólin, jólin allsstaðar!
Jamm og já, nú er komið að því. Aðfangadagur er runninn upp, alltaf jafn ólíkur sjálfum sér. Mér finnst þessi dagur alltaf svo líkur öðrum dögum svona fram að hádegi allavega, sérstaklega þar sem barnatíminn er nákvæmlega ekkert jólalegur!
Það er eins og mig minni, að þegar ég var lítil hafi bara verið eitthvað svona jólatengt barnaefni frá morgni og alveg fram á miðjan dag.
Núna er bara eins og venjulegur sunnudagur í sjónvarpinu; Disneystundin og einhver önnur þvæla sem ég efa að nokkuð barn hafi gaman að.
Mér finnst reyndar að allur metnaður sé farinn úr barnadagskránni á RÚV yfir höfuð, en ég nenni ekki að ergja mig á því núna.
Ég ákvað að byrja að stilla upp pökkunum í stofuna í gær, undir litla, svarta jólatréð sem ég keypti mér í Húsasmiðjunni. :)
Öll almennileg gervitré eru að sjálfsögðu uppseld, hafa örugglega klárast þegar þeir fóru að selja með 50% afslætti. En það er allt í lagi, þetta litla passar alveg ljómandi vel inní stofuna okkar. :)
Maggi minn vaknaði fyrir allar aldir í morgun, meira en tilbúinn að kíkja á pakkann sem hann vissi að beið hans í skónum útí glugga. Það var sko alveg gleði með stóru litabókina og 3 bækur um Snuðru og Tuðru, en samt var hann eiginlega mest spenntur fyrir jólastafnum sem var límdur framan á pakkann! Litli nammigrís.
Og auðvitað var ekki annað en sanngjarnt að sá litli fengi líka eitthvað fínt frá jóla, í pakkanum hans leyndist lítill, blár bangsi.
Ég er búin að vera alveg á tauginni með þetta pakkaflóð (u.þ.b. 40 stk), vitandi það að einhverjir eru alveg að drepast úr spenningi! Ég lúrði aðeins áfram í morgun á meðan Maggi skutlaðist upp í barnatímann, en hann lét pakkana alveg eiga sig.
Skynsami strákurinn minn. :)
Næsta stress er síðan bara jólamaturinn. Að vísu ekkert mikið stress, þannig, en það er bara búið að prenta það í hausinn á manni að þetta sé ofboðslega taugatrekkjandi, en ég held að það sé bara til að reyna að ganga frá manni og búa til enn meira jólastress.
Ég hef eldað hamborgarhrygg áður, að vísu ekki búið til gráðosta-sveppasósu, en ef maður er með góða uppskrift sem er ekkert ruglandi ætti þetta að vera í lagi.
Annars bara birtumst við hjá einhverju ykkar uppúr kl.18 í kvöld. :)
En nú er kaffið búið að blaðra nóg í gegnum mig, önnur amman á leiðinni með enn fleiri pakka, svo eigum við von á pökkum frá allavega 2 í viðbót.
Ef þið heyrið ekkert í mér á milli jóla og nýárs, þá ligg ég einhvers staðar á stofugólfinu þakin gjafapappír og finn mér enga undankomuleið...
Gleðileg jól, og hafið það alveg obboslega gott yfir hátíðarnar!!
Nennti engum jólakortum í ár þannig að þetta verður bara að duga svona. :)
Kveðja, Maja og fjölskylda.