Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

22 desember 2006

Heimur minnkandi fer

Ég rak augun í soldið skondið í dag.

Var á mínum daglega rúnti á aftonbladet.se, þegar ég rek augun í mynd af stelpu sem ég kannaðist alveg afskaplega mikið við.
Það er voða vinsælt í Svíþjóð að blogga um lífið í stórborgunum Malmö, Gautaborg og Stokkhólmi og pósta svo á dagblöðunum.
Þessi dama hafði greinilega verið í einhverjum svoleiðis pakka, og þegar ég fór að skoða nafnið hennar sá ég strax að þetta var stelpa sem heitir Margrét, sem var með mér í bekk í Austurbæjarskóla!
Ég mundi strax að hún hafði víst búið í Svíþjóð sem krakki og síðan greinilega flutt þangað aftur. Að sjálfsögðu varð ég að kommenta á hana og tékka hvort þetta væri hún, en það þarf svosem ekkert að vera að hún muni eftir mér.

Það er eins og heimurinn hafi minnkað um allan helming eftir tilkomu internetsins. :)

En nóg um það. Hér á bæ er enn eitthvað verið að reyna að stússast fyrir jólin;
þvottavélin búin að vera á fullu í dag, ég að reyna að skipuleggja skúringarnar þannig að það verði ekki allt komið í drullu strax á aðfangadag, og var að ljúka við að pakka inn restinni af pökkunum.
Ef einhverjum langar í kaffibolla eftir bæjarröltið á Þorláksmessukvöld, þá er um að gera að koma og trufla mig. :)