Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

17 desember 2006

Hverjir eru að hlusta?

Síðustu dagar hjá mér hafa farið svolítið í það að endurmeta samband mitt við fólk sem ég þekki og sem ég hef hingað til talið vera nokkuð mikilvægt í mínu lífi.
Og ég held að endapunkturinn sé sá, að á meðan fjölskyldan stendur hjá manni eins og klettur, þá sé langbest að gefa bara skít í aðra sem leggja nákvæmlega ekkert effort í að halda manni nálægt sér. Sama hvað maður reynir sjálfur.

En það er eitt gott við þetta. Á svona tímapunkti fer ég að hugsa til annarra sem ég hef átt vingott við í gegnum árin, og jafnvel reyni að hafa uppi á þeim.
Getur ekki sakað, þá í versta falli er það fólk líka í tómu rugli og ekki þess virði að hafa samband við.

Þegar það eru komin 2 börn inní dæmið hjá manni, þá er maður nefnilega ekki beinlínis að halda kontakti við hvern sem er.
Maður fer ósjálfrátt að vera soldið picky, svona eins og maður hugsi:
Er þetta einhver sem ég vil að börnin mín sjái mig umgangast? Hefur þessi manneskja kannski slæm eða lýjandi áhrif á mig, eigum við eitthvað sameiginlegt? Á hvaða stigi er intellectið hjá henni?

Hljóma eins og ég sé að finna eiginmann fyrir indverska einkadóttur mína, ég veit, en svona er þetta bara. Ég er alveg búin að tapa öllum tólerans fyrir fólki sem lætur mér líða eins og ég sé heimskari en ég í raun er, og hefur ekki um neitt annað að tala en hluti sem ég hef nákvæmlega eeengan áhuga á.

En nóg um það.

Kaffi hjá Skúla bró í dag, síðasta aðventukaffið á ár.
Ég trúi því ekki að það sé bara vika til jóla! Mér varð einmitt með hryllingi litið á gólfin hérna hjá mér áðan, vitandi það að næstu daga þarf að taka þessa íbúð í gegn svo það sé nú hægt að borða steikina með þokkalegri samvisku.

En nú er yngri gaurinn að toga í peysuna, galandi á athygli...

Later.