Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

03 desember 2006

Jólajól

Það er alveg skelfilegt hvað ég er komin í mikið jólaskap strax!
Fór í kaffi til sys í dag, át yfir mig af smákökum og svo var meira að segja kveikt á einu kerti á svona kransi. *Aaaaaw*
Takk fyrir mig! :)

Síðan kom ég heim og ætlaði alveg vitlaus að verða þegar ég sá skrautið sem mamma var að koma með handa okkur. Nú er eins gott að fara að taka almennilega til hérna svo allt fíneríið verði ekki bara eins og eitthvað djók..

Þið segið bara til ef þið viljið koma og hjálpa. :)