Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

26 nóvember 2006

*HÓST*

Jæja, mér tókst að veikjast aðeins um helgina. Hálsbólga og vesen, ekkert til að væla yfir svosem.
Hinsvegar missti ég af tónleikum sem mamma var búin að bjóða mér á, þegar ég heyrði í henni eftir tónleikana sagði hún mér að Egill Ólafs sjálfur hefði sungið
Ó, helga nótt..!
Alveg finnst mér bölvað að hafa misst af því, það er nebblega eitt af uppáhaldsjólalögunum og það í hans flutningi.

Í fyrramálið er þriðji í vigtun hjá mér.
Ég efast nú um að ég hafi lést mikið, þar sem hreyfing hefur verið af ansi skornum skammti þessa vikuna. En á meðan ég er ekki að þyngjast er ég nokkuð sátt.

Jájájá...

Það var eitthvað voða mikið sem ég ætlaði að fara að blaðra um, en ég held að þessar kommur sem ég er með geri það að verkum að það kraumi bara allt inni einhvern veginn.

Sjáum hvernig ég verð á morgun.