Mannasiðir
Þegar við litla fjölskyldan bjuggum í Svíþjóð, þótti það alveg afskaplega sjálfsagt mál að heilsa ókunnu fólki útá götu. Þá varð "Hej" kveðjan oftast fyrir valinu.
Í dag var ég að rölta til að ná í Magga minn á leikskólann. Á leiðinni gekk ég út götu þar sem er ekki mjög vanalegt að séu gangandi vegfarendur. Þá mætti ég eldri manni, segjum in his 80´s, og í kurteisi minni lít ég upp og býð góðan dag.
Haldið þið að ég hafi eitthvað tilbaka?
Onei, aldeilis ekki, nema þá kannski alveg afskaplega forviða augnaráð, eins og ég hefði verið að segja honum að það væri hætt að framleiða sveskjusafa.
Þetta hef ég aldrei getað skilið með Íslendinga. Ef maður mætir manneskju úti á gangi, þá er annaðhvort bara horft ofaní gangstéttina og látið sem maður sjáist ekki, eða þá að það er akkurat á hinn veginn, glápt á mann eins og lítill, dónalegur krakki!
Ekki það að ég sé svona athyglissjúk og vilji að allir heilsi mér því ég sé svo obboslega mikilvæg, en ég get ekki annað en tekið eftir þessu þegar maður hefur samanburð.
Eníhú... kominn tími til að safna uppskriftum í uppskriftafolderinn,
more later. :)