Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

08 nóvember 2006

Af mjónum og öðru ágætis fólki




Þessi sæta stelpa er í smá förðun áður en hún fer út á tískupallinn...
Vonum bara að lýsingin í salnum geri hana ekki feita, greyið.

Var loksins að fatta hvernig maður setur myndir með færslunum, hélt það væri eitthvað voða vesen! Helvíti eigið þið eftir að fá mikið af myndum á næstunni. :)

Ég er að gera enn eina tilraunina til að passa hvað ég læt ofaní mig.
Var alveg kominn tími á smá átak, ég var farin að éta nammi í öll mál og borða alveg fáránlega mikið af fitandi mat...
Ekki gott.

Í þetta skiptið er ég með hálfgerða samferðakonu, ekki veitir af til að peppa mann upp!

En.... Ég veit ekki hvort ég eigi að þora að tjá mig um þessi innflytjendamál sem eru að gera allt vitlaust.
Bíða þangað til mesti hitinn er farinn úr þeim? Já, ég held það líka.

Annars er hausinn tómur, verið bara sæt og biðjið fyrir aumingja feitabollunni þarna efst á síðunni.