Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

02 nóvember 2006

Smá kenning

Ég var að lesa á aftonbladet (ha?), að þrátt fyrir allar þessar týpur af megrunum og heilsufæði og grenningaraðgerðum sem eru til, þá er fólk að fitna sem aldrei fyrr.

Mig grunar að ástæðan sé sú, að þeir sem aðhyllast engan veginn svona megrunarrugli, fari algjörlega í hina áttina og "fitni viljandi", bara til að láta í ljós andúð sína á fólki sem hugsar aðeins of mikið um óhóf í sykurneyslu, skyndibitamat og öllu því sem allir vita að er óhollt.

Annað dæmi, en kannski öllu alvarlegra og heimskulegra; Nú eru kynsjúkdómar búnir að vera mikil ógn við mannkynið í tugi ára. Sprengjan sprakk í 80´s þegar AIDS vesenið kom upp. Samt, SAMT er endalaust af fólki sem finnst þetta vera orðið svo mikið áreiti að maður verði að stunda ábyrgt kynlíf, að það fer af stað niðrí bæ allar helgar til að leita sér að skemmtilegum næturfélaga, bara til að storka "the statistics".

Áróður er alls ekki alltaf af hinu góða. Í þessum tveimur dæmum er soldið greinilegt hvað fólk verður fljótt þreytt á því að heyra hvað sé hollt, öruggt og lífsnauðsynlegt og fer bókstaflega að gefa skít í það.

Þótt ég hafi eitthvað verið að rausa um daginn að það þyrfti að vera alvöru vitundarvakning hvað varðar Global Warming, þá verð ég samt líka pínu skelkuð þegar ég sé að nú eru skyndilega netdagblöð byrjuð með átak til að draga úr þessum hryllingi sem vofir yfir okkur út af gróðurhúsaáhrifum. Hver veit nema þetta fari eins og allt hitt?
Skyndilega fari allir að fá sér ísskáp í hvert herbergi, kaupa sterkustu perur á markaðnum í náttlampana og hætti að láta smyrja vélarnar á bílunum sínum?

Það er alveg afskaplega erfitt að tala um fyrir fólki á skynsaman hátt, þannig að allir hlusti og taki mark á því sem er verið að koma á framfæri.
Ég er t.d. svo mikil blaðurskjóða, að ef ég fer að ræða eitthvað af mínum fjölmörgu issue-um við einhvern í kringum mig, þá verður mér svo fljótt allt of heitt í hamsi, að öll eyru í 3 km radíus eru farin að geispa eftir stutta stund.

Kannski er ágætt þá að ég sé með þessa bloggsíðu til að fá útrás, hver sem les þetta getur þá bara hætt því þegar honum sýnist án þess að ég móðgist. ;)