Ónæði alltaf hreint...
Er orðin dálítið þreytt á svona "búa-í-sama-húsi-og-húsráðendur" aðstæðum.
Klukkan ekki nema 22, og einhver búinn að taka sjónvarpsloftnetið af á efri hæðinni...
Ekki sátt, en það verður að hafa það. Var nú ekki að horfa á merkilegri þátt en America´s Next Top Model, I´ll live.
Verst að missa af þarna feitabolluþáttunum sem koma á eftir... Þeir eru sko alveg nýja uppáhaldið hjá mér, How to look good naked. Alltaf gott að safna smá tipsum um leið og spiki. ;)
Talandi um, nú er greinilega kominn einhver vetur í skrokkinn á mér, því ég er búin að liggja svoleiðis yfir óhollustunni núna undanfarna daga, að ég svona fer alveg að fá ógeð á sjálfri mér...
...En samt ekki alveg strax. Ef ég þyngist um 3 kg eða meira, þá skal ég hætta.
Eða allavega minnka við þetta aðeins.
Ætli ég sé ekki bara farin að smitast af öllum þessum ofdekrunarauglýsingum sem eru alltaf rúllandi í sjónvarpinu..
Ég sver það, á meðan ég var að bíða eftir að módelin byrjuðu áðan, þá voru örugglega svona 5 auglýsingar í röð um hvað það væri nú æðislegt að geta bara hætt að vinna þegar maður vill, eiga pening fyrir öllu sem manni langar í, að ég tali ekki um allar milljónirnar sem er hægt að græða ef þú býrð til nýjan Wonder-reikning fyrir áramót. Það er ekkert skrýtið þó fólk sé alltaf að eltast við eitthvað líf sem er ekki til nema kannski í góðri Hollywood sápu um Paris Hilton, þessi fyrirtæki gera ekki annað en að telja fólki trú um að það sé aulalegt að vinna með höndunum og að eiga ekki fyrir hárgreiðslu á 2ja vikna fresti, allri línunni úr Karen Millen plús allar utanlandsferðirnar og jeppana.
Ég myndi vilja vita, hver kom fyrstur allra með þessa stupid hugmynd að vinna sé eitthvað sem maður á ekki að þurfa að standa í.
Nú er einmitt alveg afskaplega móðins í Svíþjóð, var ég að lesa, að vinna sér sjálfur inn peninga. Þar hefur verið mjööööög mikið um að fólk er að fá einhverjar billjónir í arf ásamt gömlum herragörðum og kannski nokkrum jörðum svona í stíl.
En blessaðir Svíarnir eru búnir að átta sig og sjá hvað þetta er asnalegt, að vera alltaf með hreinar hendur en eiga samt allt sem hugurinn girnist og rúmlega það.
Já, ég veit. Þetta er eitthvað issue hjá mér, eins og margt annað.
Kannski er það einmitt af því að maður hefur ekki alla þessa "æðislegu" hluti sjálfur, sem á endanum munu gleypa þetta fólk, að maður áttar sig á því að lífið og hamingjan eru ekki einhver endastöð þar sem maður bara sest niður og hugsar: Jæja, þá er ég komin, búin að lifa lífinu og ekki nema rétt 25 ára.
Allavega finnst mér meira varið í líf þar sem eitthvað er að gerast, ups and downs, þar sem maður hefur gaman af að kaupa sér hluti því maður er búinn að vinna sér inn fyrir þeim.
Hitt þarna vesenið er ekkert líf. Bara spillt ónáttúra.