Brrrrr.....
Já, það er orðið soldið kalt hjá okkur. Ég var að enda við að teygja mig í einhverja ofsa mjúka og hlýja sokka sem ég sá liggjandi á stofugólfinu, og ég get svo svarið að ég heyrði alveg ánægjustunu frá tánum um leið og ég smeygði þeim á mig.
Þegar svona kalt er, þá er ég ekkert alveg í stuði til að taka röltið á morgnana með barnavagninn til að koma eldri piltinum í leikskólann. Onei.
Ég hef alltaf verið með alveg ægilegt ofnæmi fyrir frosti, og þá sérstaklega ef því fylgir svo mikið sem andvari. Oj, hvað ég hata vetur...
Og elska sumar. Það var einhver finnsk heimildarmynd á RÚV áðan, tekin um hásumar, og mig langaði helst til að gefa skít í allt, selja allt sem ég á og drulla mér útá Karabíska eða eitthvað.
En nei, ég er nú ekki alveg svo biluð.
Núna er eitthvað svona tímabil hjá mér þar sem mig langar að fara að gera einhverja bölvaða vitleysu. Einhvern tímann ætlaði ég að vera ofsa dugleg og gera Pilates æfingar á hverju kvöldi, en plássið á stofugólfinu er ekki alveg að bjóða uppá það. Síðan reyndi ég einhvern tímann að finna eitthvað um jóga og svoleiðis stöff á Netinu, hélt actually að ég myndi hafa einhverja þolinmæði í það.
Neibb, gekk ekki upp heldur.
Nú er nýja dellupælingin hjá mér að fara í Söstrene Grene í Smáralind, kaupa mér hræódýra olíuliti og striga og rembast við að mála..!
Þetta á nú að heita að vera í blóðinu á mér, þ.e. að geta teiknað, en þar sem ég hef aldrei getað teiknað hund án þess að einhver haldi að það sé eldavél, þá er spurning hvort maður ætti ekki bara að prófa þetta.
Mig vantar alveg svona hobbý heima fyrir, annað en að hanga á netinu öll helv. kvöld.
Væri líka gaman að hleypa Magga litla í þetta, hann er nefnilega með alveg einstakt auga fyrir litum og litasamsetningum. Sem þýðir örugglega að hann er ekki litblindur eins og hálf ættin okkar beggja foreldranna..
Mér finnst það skrýtið.
En nú er bara að bíða og sjá, hver veit nema einn góðan veðurdag muni allir heyra af Maju Skraju, listakonu á Nesinu, sem hefur nýlokið við að gera samning við The British Art Museum. Heitir það það ekki annars...?
...I doubt it. ;)