Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

12 október 2006

Kvenremba?

Þökk sé blessaða kaffisopanum að ég nennti að gera eitthvað þegar búið var að koma drengjunum í rúmið.

Mig langaði að minnast á soldið sem ég varð vitni að í vinnunni um daginn, og ekki í fyrsta skipti...
Konur (og þá sérstaklega svona bleiksokkur eins og ég) tala voða mikið um hvað karlmenn séu nú miklar karlrembur, þeir hakki endalaust á því hvað við erum lélegir bílstjórar, hugsum allt of mikið um útlitið o.s.frv. Kannast örugglega margir við það.
En svo í vinnunni um daginn, þá skyndilega hálfskammaðist ég mín fyrir að vera stelpa. Þannig er, að það vinnur einn 17 ára strákur á kassa í búðinni. Hann var fenginn til að hjálpa til við að skipta um ljósaperur í luktunum sem eru fyrir ofan hvern kassa. Ég segi í algjöru sakleysi, að það sé nú alveg upplagt fyrir hann, þar sem þetta hafi oft þótt karlmannsverk. Og ég get alveg sagt að þetta kom alls ekkert hæðnislega út eða neitt þannig. 2 dömur sem voru eitthvað að bardúsa í þessum ljósaperumálum voru fljótar að grípa þetta á lofti, og fóru svona flissandi að segja að loksins væri hægt að hafa eitthvað gagn að þessum karlmönnum og eitthvað, og létu strákgreyið líta út eins og algjöran hálfvita.
Nú þekki ég þessar dömur nokkuð vel, og veit alveg að það var alls ekkert illt meint með þessu. Þeim hefur bara þótt kjörið að grínast með þetta, eftir að ég kom með þessa línu mína. En samt sem áður finnst mér að við píurnar ættum að passa okkur á öllum svona kommentum, því annars erum við bara ekkert skárri en bölvaðar karlremburnar, sem við erum blótandi í sand og ösku alla daga. Við vitum nefnilega ekkert hverjir hafa húmor fyrir svona löguðu, frekar en nokkru öðru.

Hafið þetta á bak við eyrað, stelpur mínar. Ég veit að framvegis mun ég passa mig á allri svona hæðni. ;)