Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

27 september 2006

Góðan daginn hér.

Jájájá, búið að vera nóg að gera hér, enginn tími til að blogga núorðið.
Ekki það að ég reikni með að einhver sakni þess að lesa bullið frá mér, en samt...

Sá stysti hefur verið lasinn, fékk alveg 2ja vikna kvef án þess að svo mikið sem kvarta.
Kom reyndar einhver pínu roði í eyrun með þessu, en við sluppum aftur við að gefa honum fúkkalyf. Thank God for that.

Hinn stutti gæinn ofsa sáttur á leikskólanum, ekkert nema útlendingar í kringum hann þannig að nú kann hann allt í einu að segja Good Morning. ;)
Var einmitt að sjá á mbl.is að nú ætti að fara að breyta til í Grunnskóla Seltjarnarness, börnin byrja að læra ensku strax í 3. bekk og svo verður aukið við stærðfræðina í 5. og 6. bekk.
Það er nú ekkert nema gott um enskukennsluna að segja, ég er á þeirri skoðun að börn hafi alveg ofboðslega gott af því að læra önnur tungumál sem allra fyrst.
Sjáið bara krakka sem flytjast til útlanda kannski 3-4 ára. Þau eru enga stund að læra nýja málið, án þess að svo mikið sem tapa einu orðið úr okkar ástkæra ylhýra.

Við vorum með "lítinn" voffa í láni yfir nótt, sem fór aftur heim til sín í gær.
Æðislegur 6 mánaða Rottweiler. Vorum eitthvað að spá í að taka hann, en svo er það eiginlega bara algjör vitleysa að vera með svona dýr þegar maður er ekki með eigin garð.
Hann var samt alveg frábær, varðhundaeðlið mjög ríkjandi í honum. Það er sko pottþétt að þegar kemur að því að við getum fengið okkur hund, þá verður þessi tegund fyrir valinu.
Þangað til fáum við okkur bara gargandi fugl eða eitthvað, því gæludýralaus getum við svona varla verið.

En nú eru vinnumál heimilismanna efst á dagskrá, svo og bílamál. Endalaus hringavitleysa sem ég nenni ómögulega að fara útí hér. Vill nú ekki alveg drepa liðið úr leiðindum.

Nóg í bili, adios amigos!