Allt að verða vitlaust!
Skilaboð til Heiðdísar:
Ég vildi ómögulega vera að bæta inná kommentadótið hjá þér, mér fannst þetta vera orðið alveg nóg..!
En ég vona að þú hafir ekki tekið þessu illa sem ég sagði, vegna þess að þetta var alls ekki meint þannig. Maður getur ekki verið klár á öllum hlutum, og mig langaði bara að benda þér á þetta í mestu vinsemd.
Og please, ekki senda handrukkara á mig! ;)
Netrifrildi eru alveg afskaplega óþörf og kjánaleg. Þeir sem eru forvitnir og vita ekkert hvað ég er að tala um, geta kíkt á Heiðdísarblogg... Er það ekki, Heiðdís?
Minnir mig soldið á þegar ég asnaðist til að hanga á Barnalandinu, þar eru svo bilaðar kellingar að þær láta gjörsamlega allt flakka um bláókunnugar manneskjur, allt í skjóli nafnleyndar.
Ef það er ekki hægt að taka upp síma og tala við fólk eins og fullorðnir, þá er subjectið greinilega ekki þess virði að eyða neinu púðri. Ekki satt?
Það var eitthvað verið að væla í mér um að ég hefði ekkert skrifað svo lengi og ég þori ekki öðru en að hlýða þessum frekjum í kringum mig.
So here it goes.
..............Uuuuuuu........
.........Öööömmmmm.......
Já, ætli þetta sé ekki einmitt ástæðan fyrir því að ég hef verið slöpp við að skrifa...
Lífið gengur bara sinn vanagang hjá okkur, makinn vinnur úti um allan bæ á meðan ég vinn heima með grislingana.
Sá minni varð einmitt 4ra mánaða í gær, og hinn verður 4ra ára á föstudaginn..!
My, time sure flies by.
Ég var einmitt að velta því fyrir mér í gær hvort ég ætti ekki að reyna að vera soldið flott mamma og baka fyrir hann eins og eins köku eða svo. Þó ég eigi helst ekkert að koma nálægt bakstri...
En maður sér hvernig fílingurinn verður. Í versta falli fæ ég þá að halda afmæliskaffi hjá múttu.
Ekki í fyrsta skipti.
Skírn á sunnudaginn, bróðir minn bölvaður og daman hans ákváðu að vera á undan okkur að skíra, samt með miklu minna barn! ;)
Það er ok, við erum alveg komin með dag og alles.
Æi, er þetta ekki bara nóg í bili?