Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

09 júlí 2006

Pearl Jam rúla!

Við náðum okkur í upptöku frá Storytellers giggi með Pearl Jam af VH1.
Djöfulsins endalausa snilld!
Að vísu vantaði eitthvað aftan á það, en við verðum sko fyrst allra að mæta í Skífuna þegar þetta kemur út á DVD.
Fundum líka eitthvað sem heitir Pearl Jam: The Movie, en eigum alveg eftir að kíkja á það.
Það sem við erum búin að skoða af því bendir til að þetta sé nokkurs konar documentary sem er tekið upp á einhverju tónleikaferðalagi. More on that later, hlakka geðveikt til að horfa á það.

En... ég hefði átt að vera aðeins bjartsýnni í þessum pestamálum.
Svona klukkutíma eftir að ég skrifaði síðasta föstudag að sá litli hefði alveg sloppið, vaknaði hann með ljótan hósta.
Það hlaut svo sem að koma að því hjá litla greyinu, allir búnir að vera hnerrandi og snörlandi oní hann. En það þýðir alls ekki að það sé eitthvað auðvelt að horfa uppá hann, allan rauðeygðan og dasaðan.
Það er samt alveg ótrúlegt hvað hann hefur verið góður. Ég held að síðan hann veiktist hafi hann farið einu sinni að gráta, og það var bara í morgun af því ég var ekki alveg nógu snögg á fætur til að útbúa pela handa honum. Ekki mikið kvartað á þeim bænum! Núna situr hann í ömmustólnum sínum og hlær eins og asni ef ég svo mikið sem lít á hann..... Yndislegur.

Á morgun eru einmitt 2 vikur síðan hinn gæinn veiktist, og hann er ekki alveg orðinn 100%.
Allavega er ég ekkert að senda hann neitt út nema þá bara í bílinn með pabba sínum.
Sjálf er ég þónokkuð sloj eftir 10 daga aumingjaskap, og makinn ekkert skárri.
Þetta er glatað, maður kemur engu í verk, og ég hef ekki farið lengra en út í ruslatunnu síðan einhvern tímann í byrjun vikunnar!
Það verður sko farið í massívan labbitúr þegar þetta er allt búið.... Kannski að ég fari meira að segja bara að skokka!
Ekki veitir af....

Jájá....
Ég var með einhvern helling í hausnum sem ég ætlaði að babla um á þessari síðu, en svo vill það oft hverfa algjörlega um leið og ég sest fyrir framan tölvuna.
Skyldi það þýða að ég eigi að blogga oftar? Ég ætti kannski bara að fara að hafa það að reglu að það komi eitthvað bull á hverjum degi, þá er örugglega minni hætta að ég tæmist algjörlega og hafi ekkert að segja. Því ef það er eitthvað sem ekki fittar við mig, þá er það að vera
orðlaus. ;)