Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

07 júlí 2006

Frumlegheit.

Jebb, í dag ætla ég að vera alveg sérstaklega frumleg.
Ég er nú þegar búin að lesa nokkrar bloggsíður síðan ég settist fyrir framan tölvuna, og það hefur barasta enginn talað um þetta subject, sem ég ætla að koma með með núna.
Nefnilega Rockstar:Supernova þáttinn á miðvikudaginn.
Yeah, right....

Eins og allir sem hafa tjáð sig um hann Magna kall, þá fannst mér hann nú ekki bestur, en heldur alls ekki verstur. Ætli hann sé ekki svona 4.-5. neðsti, allavega eins og staðan er núna.
Ekki slæmt, miðað við að flestir þekki hann sem sveitaballasöngvara....
Og að sjálfsögðu verður að fylgjast með í kvöld, þegar kemur í ljós hvort Íslendingar hafi verið nógu eager (?) í að spreða pening í að halda honum inni með atkvæðagreiðslu via sms.
Þetta verður spennandi..

Og annað spennandi; ég eignaðist litla frænku í fyrradag. ;)
Eigandi Tobbubloggs, sem er einmitt kærasta Skúla bró, fæddi þessa líka fínu stelpu um kvölmatarleytið þann 5. júlí. Það var nú bróa líkt, að eignast barn á matartíma. ;)
Að sjálfsögðu læt ég fylgja innilegar hamingjuóskir til þeirra krúsídúllanna.

Annars hefur þessi ógeðslega pest sem fjölskyldan fékk verið algjörlega dóminerandi á heimilinu.
Nú er rúm vika síðan ég veiktist, og það er fyrst í dag sem ég leggst ekki í sófann til að lúra af mér slappleika strax eftir morgunmat. Þetta hefur verið meiri viðbjóðurinn.
Og að sjálfsögðu hefur verið eilífðar hræðsla við að litli guttinn fengi þetta í sig, en merkilegt nokk virðist hann alveg ætla að sleppa *7,9,13*.
Það var að vísu eitthvað aumingjalegt yfir honum fyrr í vikunni, einmitt þegar ég var sem verst, þar sem hann bara svaf og drakk, svaf og drakk. Ég vona bara innilega að það hafi verið allt sem hann fær, því ekki get ég ímyndað mér hvernig svona lítið kríli verður af svona pest.

En já, Nu Skin it is. Ef einhver hefur heyrt um það, og þekkir eitthvað af vörunum, þá er núna hægt að panta þær í gegnum mig.
Er núna að einbeita mér að því að næra vannærð börn útí heimi, og ætla að stúdera hitt bara svona í rólegheitunum með því.

Þið munið bara að láta heyra í ykkur ef þið hafið áhuga á að styrkja þetta fína málefni...
Getur maður sagt það í þessu tilviki?