Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

26 maí 2006

Mjólkurvandi

Nú er víst ekki um annað að ræða fyrir mig en að gefa nýja gæjanum pela í ábót við hitt.
Fór með hann í skoðun í fyrradag, og þar kom í ljós að hann er eiginlega ekkert að þyngjast, heldur hefur eiginlega bara staðið í stað, en lengist samt alveg voðalega.
Sem þýðir, að þrátt fyrir mjólkuraukandi te og endalaust vatnsþamb, er ég ekki að mjólka nóg.

Ég fór alveg í flækju til að byrja með, og vildi ekki ræða þetta við nokkurn mann, en eftir að ég fór að sjá hvað hann var rosalega saddur og vær eftir pelagjöf, þá róaðist ég aðeins.
Auðvitað skiptir það öllu máli að barnið sé satt og ánægt, hvaðan sem það kemur síðan.
Og ég er heldur ekkert verri eða óhæfari mamma þó svona sé. Ég veit að það eru margar sem glíma við svona leiðindavanda, og einhvern veginn ráða þær í gegnum þetta.

Nú finnst kannski einhverjum ég vera voða persónuleg að koma með þetta hingað, en ég geri það ekki síst til að sannfæra sjálfa mig endanlega um að þetta sé í lagi, ég geti verið fegin að það er eitthvað sem getur komið í staðinn fyrir "hefðbundnu næringuna".

Í byrjun mælti ljósan með einni ábót á dag, bara svona fyrir nóttina, en nú er hádegi og ég var að enda við að gefa honum stóran pelaskammt. Stærri en hún reiknaði með að hann myndi geta drukkið eftir brjóstagjöf.
Sem er auðvitað ágætt, því nú þykist ég vera nokkuð örugg um að drengnum líður ágætlega, og á þennan hátt er líka voða þægilegt að geta fylgst með hvað hann er fá oní sig.
Svo er bara að sjá á mánudaginn, þegar hann verður vigtaður aftur, hvort þetta sé eitthvað að ganga hjá okkur.

En nú er rokið að mestu hætt úti, ég ætla að nota sénsinn og kíkja út í smá göngutúr.
Þá væri auðvitað eftir því að það færi að rigna.....