Been a while?
Já já, það verður að hafa það.
Þegar maður á svona obboslega fínan, nýjan kall þá hefur maður ekkert með blogg að gera.
Ekki einu sinni sjónvarpið er að gera sig þessa dagana..!
Nema þá kannski rétt á meðan ég er að gefa honum á kvöldin.
En allir eru frískir, nýi gaurinn er að skríða í fæðingarþyngdina sína (var 5,2 kg daginn sem hann var 4 vikna), og drekkur eins og hestur. Er ekki alveg hægt að segja það...?
Það gerir allt ferska loftið. Nú líður ekki sá dagur að ég hreyfi ekki á mér rassgatið eitthvað aðeins, þó það sé ekki nema bara útí búð og tilbaka. Og þegar maður býr útá Nesi er afskaplega erfitt að láta göngutúr meðfram sjónum framhjá sér fara á blíðviðrisdegi eins og í dag.
Við þremenningarnir stigum einmitt útúr húsinu um 9:30 í morgun, og það fyrsta sem ég hugsaði þegar ég sá fína sjóinn var, að nú langar mig að vera í Norrænu að slæpast um Atlantshafið. Það er ekki vaninn hjá mér að hugsa svoleiðis, en vá, það var ekki hægt annað!
Ég var minnt á það í dag með símtali að það eru einhverjar kosningar á næstunni...
Síminn hringir akkurat á meðan ég er að skipta á nýja gaurnum, og sá eldri svarar í símann.
Ofsa duglegur.
Ég fer svona að hlusta eftir hvað hann segi í símann, hvort þetta sé einhver sem ég þekki eða hvað. Eftir að búið er að skiptast á kveðjum, fer hann einhverra hluta vegna að tala um flóasjampó (sem við, btw, vorum að versla fyrir heimilsköttinn í gær.)
Mér leist nú svona mátulega á þetta, þannig að ég tók af honum símtólið...
Þá var þetta einhver Ingi að hringja fyrir Sjálfstæðisflokkinn..!
Haha, hann vissi eiginlega ekkert hvernig hann átti að vera eftir þetta skrýtna samtal við "húsbóndann" á heimilinu....
En nú er komið að Idolinu, ég nenni heldur ekki að sitja við tölvuna lengur.
Það bíður einn tannlaus og þunnhærður eftir mér í sófanum. ;)
Ciao!