Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

27 apríl 2006

Húmor dauðans!

OK, þeir sem sáu ekki Jay Leno í kvöld, sjáið endursýninguna um helgina.
Það lá við að ég kafnaði, Robin Williams er without a doubt fyndnasti maður í heimi!!


Það eru nokkur orð sem ég myndi gefa mikið fyrir að heyra aldrei aftur...:

1. Sundabraut
2. Verðbólga
3. Kosningar
4. Bensínhækkanir
5. Vatnsmýrin...

Ef ég væri ekki á leiðinni í rúmið, myndi ég örugglega finna fleiri.
Ákvað svona í gríni að horfa á Kastljósið í kvöld, þar sem var bara verið að tala við einhverja frambjóðendur... Eða nei, fulltrúa úr hverjum flokki...
Shit, ég veit það ekki.
Allavega voru þeir þarna Björn Ingi, Dagur, Vilhjálmur, einhver kona og einhver maður...
Er sem betur fer ekki alveg nógu vel að mér í þessu.
OK, á tímabili voru kannski 3 manneskjur að tala (eða gala) í einu, og ég get svarið að mér varð óglatt.
Mér leið svona eins og ég geti ímyndað að mér myndi líða ef ég færi á árlegt þing algebrukennara...
Að fólk skuli sitja yfir þessu og átta sig á því sem gengur á, orð fyrir orð!
Ég er ekki einu sinni farin að átta mig á hvers vegna allir vilja fá flugvöllinn burt..!
Er hann ekki bara fínn þar sem hann er?
Skilst að fólk sé eitthvað að kvarta yfir hávaða frá honum, well, það má nú reikna með smá látum!
Hvað má þá fólkið í úklöndum segja sem býr kannski við hliðina á lestarstöð??
Bara að spá...

Draumarugl

Almáttugur, ég vona að eftir þessa nótt sé ég hætt að vera berdreymin...
Mig dreymdi nefnilega að ég rækist á eina ómerkilegustu lygatík sem ég hef þekkt á ævi minni.
Það væri ekkert voðalega vinsælt að fara eitthvað að hitta á hana núna, ætli ég myndi ekki hreyta einhverjum vel völdum orðum í hana...
Eins og ég gerði einmitt í draumnum.

Ömurlegt samt hvað þetta getur eyðilagt fyrir manni daginn, að vakna með einhvern svona skít í hausnum. Nú er ég alveg með hana á heilanum, og langar helst að öskra eitthvað útí bláinn.
Er að vísu á leiðinni í göngutúr, kannski get ég hrópað einhver ókvæðisorð á Nesöldurnar....

Eldri drengurinn er að missa vitið af leiða, verð að skella mér út...

Later, dudes.