Alltaf verið að plata mann...
Ég hélt að ég myndi fá taugaáfall í kvöld þegar ég fór á kvikmynd.is...
Þar sá ég videoklippu sem hét hvorki meira né minna en "Titanic 2"!
Ég ætlaði sko ekkert að þora að opna þetta til að byrja með...
Neinei, var þetta ekki bara þessi fíni trailer fyrir sequel af aðalvælinu.
Gæjarnir sem voru að skoða skipið á hafsbotninum og fengu þarna gömlu konuna til sín sem átti demantinn, finna Jack Dawson frosinn í ísklumpi og taka hann upp til að þíða hann..!
Jájá, hann auðvitað fer beint að leita að Rose sinni, skilur ekkert í hvað heimurinn er orðinn skrýtinn... lendir í fangelsi og allt.
Svo sá maður fullt af fínum leikurum, Jennifer Connelly og John Cusack og einn svona krullhærðan sem ég man aldrei hvað heitir...
Vá, þvílík steypa! Ég fékk sko mesta aulahroll sem ég hef á ævi minni fengið, og bara hálfskammaðist mín bæði fyrir að horfa á þetta, og fyrir að vera jarðarbúi.
En þetta bara gat samt ekki verið...
Googlaði þetta í einum grænum, og viti menn...
Þetta var bara 26. aprílgabb.
*hjúkk*
En nóg um það. Ég fékk að láni eitt stykki barnavagn í dag frá henni Hildi minni. ;)
*Takk Hildur!*
Ég verð sko farin útúr húsi örugglega strax klukkan 6 í fyrramálið, ég er svo spennt!
Geggjað að geta hreyft sig aftur, maður...
Og eldri pjakkurinn getur líka farið að anda léttar, hann greyið hefur verið að drepast úr leiðindum hérna heima meira og minna síðan litla dýrið kom heim.
En svona er þetta, mér er svo illa við að fá leikskólabörn hingað heim svona fyrstu vikurnar, enda er mælt með því að maður bíði með svoleiðis heimsóknir.
Var einmitt að hugsa það í dag hvað ég er fegin að hann sé ekki á leikskóla núna, sá eldri...
Ég hugsa að ég væri farin á taugum, ég má bara ekki til þess hugsa að sá pííínulitli verði lasinn, ekkert bólusettur og ekki neitt.
Mörgum finnst ég vera taugaveikluð, en mér finnst skárra að fólk haldi það og barnið mitt fái að njóta vafans, en að vera að eltast við óþolinmæði hjá öðrum og vera að deyja úr stressi í hvert skipti sem ég fæ börn í heimsókn.
Já, svona gengur þetta. Það verður gaman í sumar, allir frískir og leikskólarnir í fríi! *hahaa*
En nú er einhver að láta heyra í sér í mónitórnum, ætla að fara að kúra hjá honum...
Góða nótt.