Kominn tími til!
Loksins að það var gerð könnun á þessu sem ég er alltaf að tuða yfir.....
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1197431
Niðurstöðurnar, þar sem segir að konur séu í því sem telst kynæsandi fatnaður í yfir 80% af myndböndum á PoppTíví, koma mér sko ekki á óvart.
Það liggur við að maður fái blygðunarkennd í hvert skipti sem maður er með stillt á þessa stöð, þetta er orðið svo gróft!
Æi, ég veit það ekki, mörgum finnst ég vera óttaleg tepra, en þetta er bara eitt af fjölmörgu sem "botherar" mig alveg hrikalega.
Ég man alveg þegar ég fór að finna fyrir því sjálf, að þessi flóra af myndböndum og öðru sjónvarpsefni fór að hafa áhrif á bara venjulegar stelpur í daglegu lífi, eða á djamminu.
Eins og þegar ég var stödd á 22 einhverja helgina, og við barinn labbar bláókunnugur maður upp að mér og klípur mig í annað hvort brjóstin eða rassinn... Held frekar rassinn.
Ég sneri mér að honum og spyr hvern andskotann hann haldi að hann sé að gera.
Fauk í mig, að sjálfsögðu...
Þá brást hann svona hrikalega illa við, og fór bara að rífa kjaft! Það hlyti nú bara að vera eitthvað að mér, fyrst það mætti ekki aðeins klípa í mig!
Þetta er ein af afleiðingunum af öllu þessu æðislega frelsi í kringum myndbandaflóruna.. Það er eins og konur séu bara einhver sjálfsögð object, sem standa bara og bíða eftir að það komi einhver karlógeð og leyfi sér að káfa á þeim eins og þeim lystir.
Ég man líka að ég sá fyrir svona 2 árum, að árið 2003 fjölgaði nauðgunum á stelpum undir 18 ára um 37% frá árinu áður.
Unglingsstelpur eru alltaf í meiri og meiri hættu, því jafnaldrar þeirra af hinu kyninu eru svo einfaldir, að þeir skynja allt sem einhvern heilagan sannleik og hið eina rétta, sem rapparar og hipp-hopparar og hvað þeir heita eru að boða.
Úff, ég er svona eiginlega of syfjuð til að vera að reyna að koma þessu frá mér, eins og sést kannski. En, það er allavega búið að koma þessu á framfæri.
Svo ég víki nú að mér og nýja barninu. ;)
Nú er verið að þamba svona mjólkuraukandi te; drakk 2-3 bolla í gær og búin með 2 í dag.
Er ekki frá því að þetta sé að virka, allavega eru bleyjurnar hjá Risanum orðnar helmingi þyngri!
Ljósunni á heilsugæslunni finnst hann nefnilega ekki vera að þyngjast nóg, og í staðinn fyrir að ég þurrki mig upp og fari að láta hann á pela, þá stakk hún uppá að ég prófaði þetta.
Hún kemur svo að vigta hann á mánudaginn, og þá vill hún sjá hann vera kominn yfir 4,9 kg....
Sem er einmitt það sama og hinn pjakkurinn minn vó þegar hann var 1,5 mánaða!
Þetta er nú meiri hlunkurinn sem ég á. ;)
Ég vona bara að það fari allt á besta veg, ég verð voða sár ef ég get ekki mjólkað nóg fyrir kútinn minn. Örugglega ekkert eins leiðinlegt fyrir svona nýjar mömmur.
*Geisp* Svei mér þá, ég hef verið að skríða í bælið fyrir miðnætti á kvöldin í um 2 vikur núna, og ég held að ég sé bara ekkert að breyta því neitt.
Góða nótt.