Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

05 apríl 2006

Allt í plati!

Helvítis heitasta helvíti....

Fór í mæðraskoðun áðan, sem var sem betur fer sú síðasta.
Og hvað haldið þið...
Hún skoðar á mér kviðinn, og segir svo "Barnið er nú ekki búið að skorða sig ennþá..."!
Ég varð auðvitað ofsa hissa, og sagði henni að þessi sem ég hitti á spítalanum fyrir 2 dögum hefði sagt að barnið væri alveg pikkfast!
Nei, hún gat ekki fundið það, og testaði alveg 2-3 sinnum í viðbót.

Oj, það litla sem ég var svekkt, maður.
Þannig að það er ekkert víst að það sé eins stutt í fæðinguna og ég hef haldið í 2 daga.

Þar sem þetta var síðasta mæðraskoðunin, þá á ég að mæta uppá meðgöngudeild á föstudaginn í mónitor og eitthvað mat. Og á mánudaginn, ef ekkert verður farið að gerast, á ég að hafa samband við fæðingarganginn, en ég veit ekki hvort það sé bara til að fá tíma í gangsetningu á miðvikudeginum (þegar ég er gengin 42 vikur), eða hvort ég fari beint þá að láta skella þessu af stað.

Nú er ég alveg skíthrædd við það helvíti, þ.e. gangsetninguna, eftir að ég heyrði að bæði gangi fæðingin þá oft hægar, og að það eru meiri líkur á keisaraskurði í kjölfarið.
Alveg eitthvað fyrir mig, sem er búin að kvíða fæðingunni í marga mánuði.

En svona er þetta nú bara. Það er víst voða lítið hægt að segja blessuðu krílinu til, en það segir mér bara að það verður fljótt tekið á uppeldinu hér! ;)

Þið bara haldið áfram að rembast....