OK, það er bara 26. febrúar, ekki 1. apríl....
Tók mér það bessaleyfi að koppí/peista þetta beint af mbl.is...
"Friðarsúla Yoko Ono, sem til stendur að rísi í Viðey, gæti orðið allt að þrjátíu metra há. Hún gæti því orðið tákn landsins í augum útlendinga eins og frelsisstyttan í New York eða Eiffelturninn í París. Kostnaðurinn við verklegu framkvæmdina gæti orðið allt að 30 milljónir króna og mun Reykjavíkurborg standa straum af honum."
Ég ætla ekki einu sinni að byrja að tjá mig um þetta, því ég held að blogspot kerfið myndi springa.
Hinsvegar væri gaman að heyra hvað öðrum finnst, þ.e. hvort ég sé bara orðin eins og hver önnur leiðinda nöldurskjóða í Vesturbænum, eða hvort það er eitthvað meira en bogið við þessa meðferð á peningum.