Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

08 febrúar 2006

Yeeesss....

Vá, hvað ég er sátt við Sirkus núna...
Þeir eru að fara að endursýna alla X-Files þættina frá upphafi!
Úúúú, nú verður sko legið fyrir framan imbann á fimmtudagskvöldum.
Og videotækið húkkað, svo makinn missi ekki af neinu.

En.. við erum ekki farin að finna íbúð enn. Ekki ein einasta áhugaverð í auglýsingunum í dag.
Ég held að það sé langt síðan þetta hefur tekið einhvern tíma, þ.e. meira en einn sólarhring.
Kannski er það einmitt vegna þess hve leiga hefur hækkað alls staðar, maður tímir ekkert að fara í neitt almennilegt.

Svo veit ég að það eru nokkrir kisuvinir sem lesa þetta bull í mér reglulega, og ég get sagt ykkur frá því að hann Albert minn er allur að koma til. ;)
Hann er meira að segja búinn að borða pínupons í dag, og var í einhverju tætingsstuði í rúminu okkar.
Oh, það er svo gaman að vera búin að endurheimta hann eftir "allan þennan tíma." ;)

Ofsa tóm, aðallega sökum þreytu sem magnast núna með hverjum deginum sem líður.
Það fer sko ekkert á milli mála að það fer að styttast í lætin hjá mér.
Á morgun er ég einmitt gengin 33 vikur, sem þýðir að það eru ekki nema 7 vikur eftir af eðlilegri meðgöngu..!
En við hjónin erum nú bæði búin að spá því að krílið láti sjá sig eitthvað aðeins fyrr, þannig að ég segi að það séu 4 vikur eftir. Þá verður þetta svipað og með Pjakkinn. ;)

Ekki veitir af baráttuhugsunum þangað til....

Pæjugangur

Stundum koma svona dagar, þar sem mig langar bara að standa fyrir framan spegil og mála mig alveg voða fína, þó svo að klukkan sé orðin hálftólf um kvöld.
Sérstaklega þegar ég er nýbúin að plata mömmu til að gerast áskrifandi að Nýtt Útlit, þarna nýja snyrtitímaritinu.
Og skoða með henni bækling frá H&M.
Og plana að koma mér í ágætis form um leið og ég get eftir meðgöngu.

Svo ákveð ég að sleppa því að mála mig, en sest í staðinn fyrir tölvuna og fer að japla á
Quality Street.
Svona er ég samkvæm sjálfri mér.

Highlights í dag: Íbúðarleit og lasinn kisi.

Höfum svosem fundið eitthvað af íbúðum, en eins og fyrr segir, þá er þetta svo dýrt að við eigum eftir að enda í einhverri geymslu á Álftanesi. Bara níska í okkur.
En það þýðir ekkert að vera quitter, eigum næstum því heilan mánuð eftir af þessum leigulista, þannig að tíminn er að fara ágætlega með okkur.

Albert hefur verið sloj í ca 2 daga núna, hefur ekkert borðað og varla nokkuð drukkið.
Liggur bara í sófanum og lætur mig vorkenna sér.
Það vantar sko ekki að hann fái vorkunn hjá mér, kasóléttri dömunni.

Ég man einmitt þegar ég var ólétt að Pjakkinum, að þá létum við gelda fressinn okkar bara einhverjum örfáum vikum áður en ég átti að eiga.
Við sóttum hann á dýraspítalann þegar að því kom, og græninginn ég hafði aldrei séð hvað kettir verða steiktir eftir svona aðgerð.
Við með dýrið heim, og létum hann sofa í rúminu okkar, eins og góðum foreldrum sæmir.
Svo skrapp Makinn eitthvað út, og ég gaf mér það hlutverk að passa voða vel uppá kisa á meðan.
Hann fór eitthvað að reyna að staulast til að pissa, og endaði með að pissa á bakvið þvottavélina.
Svo reyndi hann að koma sér inní herbergi aftur, en gerði ekki annað en detta og hrasa og eitthvað á leiðinni...
Eftir einhvern tíma kom Makinn heim frá þessum erindum, og vitið þið hvað...
Þá sat yours truly í stól, með köttinn hálfrotaðan ennþá í fanginu, alveg hágrenjandi!!
Hahahaha, ég get sko alveg hlegið að þessu núna, en mér fannst hann bara eitthvað svo aumkunarverður og glataður, að ég gat ekki annað en grenjað!

Æææ, gaman að rifja svona vitleysu upp.

Ég vona nú að þetta sé ekkert alvarlegt með Albert núna...
Sjáum bara hvernig hann verður á morgun.