Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

06 febrúar 2006

Íbúð óskast!

Jamm, við erum farin að leita okkur að íbúð.
Skráðum okkur á Leigulistann í dag, og ég er komin með legusár á rassinn eftir að hafa setið við tölvuna aaallan eftirmiðdaginn, rýnandi í auglýsingar á mbl.is og visir.is og allt þetta.

Þetta er bara svo dýrt, að maður er skíthræddur við að fara útí þessa vitleysu.
Fólk er að rukka allt að 2000 kall fyrir fermetrann, og kvaðirnar eru oft svo bjánalegar að maður á ekki til orð.

En ok, ef einhver veit um eitthvað, þá erum við að leita að 2-3 herb. íbúð, nokkurn veginn sama hvar í bænum eða ekki-bænum, og að sjálfsögðu verða að vera leyfð gæludýr.
Uuuu... húsaleigubætur, já takk, leiga max. 80.000.
Sem mér, by the way, finnst vera algjört brjálæði.
En þetta er víst standard prísinn í dag. Svo skoðar maður íbúðir til leigu í Svíþjóð, þar sem 3-4 herb. íbúðir eru að fara á svona 50.-60.000 kall....

Oh, well. Látum það bíða betri tíma.

Kjaftstopp, læt vita af framvindu mála.