Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

31 janúar 2006

Búin að laga. ;)

Fékk smá ábendingu um að það væri eitthvað rugl með kommentin hjá mér...
Hélt nú bara að ég væri svo leiðinleg að það vildi enginn skrifa neitt. ;)
En ég búin að laga það, þannig að nú er bara að go nuts.

Lítið að gerast svona annars. Við vorum reyndar svo sniðug í dag að skjótast í Góða Hirðinn í dag til að ná okkur í kaffikönnu fyrir 500 kall. Sá var snöggur að fá sér tíu sænska Zoega dropa þegar við komum heim... :)
Birta, varst þú ekki eitthvað að væla um kaffi?

Æi, er nokkuð að gerast?
Það eru svo miklar pælingar í gangi hjá okkur sem eiga ekkert endilega að líta dagsins ljós, að það er eiginlega bara erfitt að reyna að tala um eitthvað annað.
Nema kannski barneignir, en ég meina, what´s there to say?

Sjáum hvort ég muni eftir einhverju skemmtilegu í kvöld.