Ísland, bezt í heimi?
Við vorum að ræða það hjónin áðan, hvað Íslendingar væru orðnir þekktir fyrir alveg hrikalega asnalega hluti.
Mörgum fannst alveg afskaplega skammarlegt hér áður fyrr, að eini þekkti Íslendingurinn skyldi vera Björk. En ég held að það hafi eitthvað breyst.
Nú erum við aftur voða stolt af henni, eins furðuleg og hún er, blessunin.
Jújú, við vorum svo heppin að ná okkur í eitt stykki Miss World titil hérna um daginn, en ég held nú að það sé fljótt að gleymast svona út í heimi.
Hinsvegar er það orðið aðalmálið, sérstaklega hjá ríka og fræga fólkinu, hvað það er geggjað að djamma í Reykjavík. Og úklenskir kallar sem koma hingað tala um allar "æðislegu, blindfullu píurnar sem hrúgast í kringum mann", samanber viðtalið við Tarantino hjá Conan um daginn.
Þetta finnst mér alveg skelfilega skammarlegt. Nóg var það samt, þegar þessir íslensku héldu að þeir gátu bara káfað á kvenfólkinu eins og þeim sýndist, án þess að nokkur myndi kippa sér upp við það. Ég man allavega eftir því.
Nú er það orðið svo slæmt, að liðið er farið að hrúgast hingað alls staðar að, og að sjálfsögðu mun það þróast þannig, að þessir æðislegu, úklensku munu fara að káfa á stelpunum eins og þeim sé borgað fyrir það. Jújú, sjálfsagt eru alltaf einhverjar sem gjörsamlega bjóða uppá það, en ég veit að það eru líka margar sem eiga sér oft einskis ills von.
Það er bara sorgleg landkynning.
Svo heyrði ég líka annað um hina týpuna af Íslendingum sem við erum að "ala af okkur".
Það eru þessir sem eru að kaupa allt upp út um allt.
Síðast heyrði ég, að einn af stærstu hluthöfunum í EasyJet, væri búinn að ráða sér einhverja Wall Street gæja til að hjálpa sér við að standa á sínum rétti, því hann vill alls ekki að brjáluðu snobbhænsnin frá Íslandi eignist meira en þeir eiga nú þegar.
Meira að segja honum finnst orðið nóg um.
Eftir að Baugsfeðgarnir fóru að láta að sér kveða í Bretlandi og Danmörku, eru stórlaxarnir í Evrópu orðnir skíthræddir við alla Íslendinga í jakkafötum, sem eru með a million dollar smile up their asses.
Og það er kannski ekkert skrýtið. Hver vill að einhver 300.000 manna þjóð verði allt í einu aðalnafnið í bissnessheiminum?
Hljómar ekkert smá fáránlega....
Svo fannst mér nú eiginlega bara fyndið, þegar hann þarna Björgólfur eða hvað hann heitir, sem var að fjárfesta í einhverju símakompaníi í Úkraníu, var valinn viðskiptamaður ársins 2005 í sama landi! Þetta fannst öllum hér alveg svakalega merkilegt...
Haha, hvað ætli séu margir viðskiptamenn í þessu landi, Úkraníu?
Er einhvers staðar meiri fátækt í Evrópu?
Ha ha ha, greyin... ekki hlæjandi að þessu....
Og svona talandi um hvað við erum mikil smáþjóð...
Brúðkaup ársins 2005 að mati Séð og Heyrt var brúðkaup þeirra Svanhildar Hólm og Loga Bergmanns, fréttagúrúa.
Rétt upp hendi sem finnst eitthvað subbulegt við þau....
Ég segi ekki meir.
Allavega skil ég ekki hvernig er hægt að halda svona uppá fólk, sem hefur ekkert afrekað nema það að svíkja hvort sína fjölskyldu, á einn sóðalegasta hátt sem til er.
Enda man ég hvað ég var hneyksluð þegar ég sá fyrst framan á einhverju Lífinu (mannlíf, nýtt líf..), að þau voru að grobba sig á einhverjum Porsche sem þau voru nýbúin að kaupa sér.
Það var ekkert mörgum mánuðum eftir að þau voru búin að splitta frá mökum sínum.
Æi, ég veit ekki. Mér finnst eitthvað nasty við þetta.
Svona er þetta nú allt saman. Ef allir væru eins fullkomnir og ég,
þá væri heimurinn miklu betri staður. ;)