Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

09 janúar 2006

Barnið mitt nagar á sér táneglurnar...

....geri aðrir betur.

Sá stutti sló einmitt í gegn í heimsókn hjá háls- nef- og eyrnalækni í dag. Hann leyfði kallinum bara að rykkja hausnum á sér til og frá og troða allskonar græjum og pípum í öll andlitsop.
Blikkaði ekki einu sinni auga. Now, that´s my boy. ;)
Ótrúlegt hvað maður verður montinn af einhverju svona smáræði, ég hef ekki hugsað um annað í allan dag!
Þið sem eigið börn sjálfar þekkið þetta sjálfsagt. ;)

Annars ekkert nema góðar fréttir af launa- og orlofsmálum, voðalega jákvæður dagur í dag eitthvað. Náði mér meira að segja í eitt stykki óléttubuxur á spottprís í H&M, sem er einmitt vinnustaður einnar elstu vinkonu minnar.
Hún var einmitt að tjá mér það að hún væri að hætta með kærastanum sínum, sem ég held hún hafi verið með í 7 og 1/2 ár....
Æi, mér eiginlega brá soldið. Litla, ólétta hjartanu mínu finnst allt svona alveg ægilega sad og leiðinlegt. Sérstaklega þar sem ég var sko farin að sjá þau fyrir mér eyðandi ævikvöldinu saman á Grund eða einhverjum álíka "rómantískum" stað.

En svona er þetta. Þetta er orðið alveg fáránlega algengt í kringum mig...
Ég held að ég sé bara alveg afskaplega heppin. ;)

Þar sem læknirinn var nú í sjálfri Kringlunni, hefði verið alveg fáránlegt að taka ekki einn hring með guttanum. Og ég held, án gríns, að frá og með deginum í dag vilji ég lýsa þeim 9. janúar yfir sem Alþjóðlegum Gelgjudegi. Ég hef aaaaldrei séð eins mikið af menntskælingum og Verslingum og sjálfsagt grunnskólanemum líka á einum og sama staðnum.
Minnti mig soldið á þessi frægu fyllerí sem var alltaf hópast á einmitt á Kringlulóðinni, daginn sem samræmdu prófin kláruðust.
Hehe, those wore the days, my friend, thank god they diiiid end....

Friends að byrja á Sirkus, eins gott að missa ekki af þeim.....
....Jájá, ég er nörd, og mér er líka alveg sama. :p