Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

06 janúar 2006

Jájá...

Æi, einhvern veginn (eða einkumegin) vissi ég ekkert hvað ég átti að hafa sem fyrirsögn í kvöld...
Ah, what the hell.

Fínn dagur í dag, aðeins hressari en í gær. Það fer ekkert á milli mála lengur að það er farið að síga á síðari hluta meðgöngu. Þreytan er orðin svo svakaleg, að ég hefði aldrei trúað því.
Á orðið helmingi erfiðara með að dröslast af stað á morgnana, sem þýðir að ég er ekkert alveg sú stundvísasta í vinnunni... Soldið leiðinlegt.
En svona er þetta bara. Ég byrja að minnka við mig í næstu viku, þá vonandi lagast þetta eitthvað og ég get farið að vera svona aðeins myndarlegri, bæði við heimilið og sjálfa mig.
Er orðin ansi löt við að flikka uppá lúkkið...

En nóg um það.

Við mæðginin erum að fara að horfa á fljúgandi fígúru með þyrluhreyfla á bakinu á sunnudaginn. Jebb, við ætlum að kíkja á sýningu á Kalla á þakinu. ;)
Sjálfsagt voða skemmtilegt fyrir krakkana, allaveg hlakka ég mest til að sjá svipinn á guttanum mínum þegar fíflið hann Sveppi kemur sveimandi yfir sviðið með einhvern strák í fanginu.

Samkvæmt vigtinni hjá ljósunni tókst mér að þyngjast slatta svona yfir hátíðarnar.
Það er nú kannski ekkert skrýtið, þar sem ég practically lifði á súkkulaði og gosi allan seinnihluta desembermánaðar. En nú verður tekið á! Og ekkert rugl! ;)

Æi, ég nenni ekki meir... Þetta pár núna var meira hent upp svona af skyldurækni heldur en hitt, sjáum til hvort ég verði ræðnari í kvöld eða á morgun...

....Segir maður ekki annars ræðnari?