Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

12 desember 2006

Í skóinn. :)

Ég átti sko prúðasta og sætasta pilt í heimi í morgun.
Þegar við vorum að hátta í gærkvöldi, sagði ég honum að þegar hann vaknaði skyldi hann fara beint í fötin sín, ganga frá bleyjubissness og kíkja svo í skóinn í glugganum.
Það voru miklar spekúleringar um allt þetta skóvesen í gær, en þrátt fyrir það samþykkti hann alveg þessa litlu rútínu sem ég stakk uppá fyrir hann.
Hefur örugglega aldrei verið eins snöggur að sofna heldur. :)

Síðan kom morguninn.
Ég vaknaði við það, að lítill, sætur strákur var kominn uppí rúm til mín, alklæddur með hettuna á hausnum og allt (bara svona til að gera þetta krúttlegra), og spurði hvort hann mætti núna kíkja í skóinn.
Ég bráðnaði algjörlega, enda ekki beint vön því að hann sé svona góður þegar að hann er að vekja mig! En jújú, ég hélt það nú að hann mætti kíkja í skóinn sinn.
Hann hljóp upp, hikaði greinilega í smástund því hann kom fljótlega aftur niður og sagðist ekki vilja opna stofuhurðina, það væru svo mikil læti í henni og hann vildi ekki vekja litla bróður sinn sem svæfi í næsta herbergi við!

Þarna vissi ég ekki hvert ég ætlaði, hann var eitthvað svo mikið rassgat að mig langaði helst bara að taka hann og knúsa hann það sem eftir var dagsins.
Ég sannfærði hann um það að litli bróðir myndi ekkert vakna við hljóðin í hurðinni, þannig að hann dúndraði sér aftur upp stigann, síðan heyrði ég bara smá skrjáf og mjög hratt fótatak á leiðinni niður til mín með gotteríið sem Jóli hafði gefið honum í skóinn. :)

Ef þetta er ekki nóg til að bjarga deginum hjá manni, þá veit ég ekki hvað ætti að þurfa til.

1 Comments:

  • At 11:32 e.h., Blogger Birta said…

    Jeeeeeminn eini. Ekki-barna-kerlingin ég bráðnaði meira að segja!
    Híhíhí, þvílík dúlla :þ

     

Skrifa ummæli

<< Home