Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

19 desember 2006

Gleymdu börnin í Kambódíu

Ég vona að sem flestir hafi horft á þennan þátt á RÚV í kvöld.
Það veitir ekki af smá sparki í rassinn fyrir marga, svona þegar einn mesti græðgis- og oflætistími ársins er á næsta leyti.

Gallinn var bara sá að það gleymdist alveg að setja íslenskan texta þegar kambódísku börnin voru að tjá sig um lífið á götunni og vændið sem þau eru neydd útí.
Einhvern veginn sagði málrómurinn og augnaráðið í aumingja börnunum samt alveg ótrúlega mikið, þannig að ég sat með tárin í augunum og stóran kökk í hálsinum örugglega hálfan þáttinn.
Svo er maður að kvarta.

Við sáum einmitt þátt í Svíþjóð sem var á svipuðum nótum, hvort það var um gleymdu börnin í Kólumbíu. Þar var þetta líka með að ungir strákar sem bjuggu á götunni stunduðu það að sniffa lím, bara til að leyfa vímunni að bjarga þeim frá þessum ömurlega veruleika sem lífið var fyrir þá.
Hugsið ykkur að vera kannski 9-10 ára, og hugsa ekki um annað allan daginn en hvernig maður geti leitt hugann frá því hvað heimurinn er vondur, hvað maður er svangur og að skórnir séu svo götóttir að fæturnir á manni eru orðnir eitt stórt sár.

Ég get bara ekki skilið hvernig þetta getur verið til, öll þessi rosalega fátækt.
Nú veit t.d. um það bil hvert mannsbarn í Vesturlöndum hvernig ástatt er þarna úti, meira að segja reynum við að útskýra þetta fyrir börnunum okkar strax um 3-4 ára aldur. Samt einhvern veginn virðist þetta ekkert ætla að breytast.

Ótrúlegt.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home